Fréttir | 16. janúar 2023 - kl. 17:06
Fyrirtækjamót Kormáks Hvatar í fótbolta

Skráning gengur vel á fyrirtækjamót meistaraflokks Kormáks Hvatar 2023 í innanhússknattspyrnu. Mótið verður haldið laugardaginn 28. janúar næstkomandi í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Enn er hægt að bæta við liðum á mótið og er hægt að skrá lið á khknattspyrna@gmail.com fyrir 20. janúar. Hvert fyrirtæki eða lið greiðir 20 þúsund krónur í þátttökugjald og rennur ágóðinn beint til meistaraflokk Kormáks Hvatar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga