Gettu betur lið FNV. Mynd: fnv.is
Gettu betur lið FNV. Mynd: fnv.is
Fréttir | 17. janúar 2023 - kl. 15:19
FNV úr leik í Gettu betur

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ öttu kappi 16-liða úrslitum í Gettu betur í gærkvöldi. FG gekk betur í hraðaspurningunum og leiddi keppnina 16-8 að þeim loknum. Lið FNV tók við sér í bjölluspurningunum og unnu þann hluta keppninnar 10-6. Keppnin endaði því með 22-18 sigri Garðbæinga og þátttöku FNV í Gettu betur því lokið þennan veturinn.

Á vef FNV segir: „Lið FNV getur gengið stolt frá borði enda verið skólanum og öðru æskufólki til fyrirmyndar. Þeir nemendur sem taka þátt í Gettu betur leggja mikið á sig þar sem æfingar sem hefjast í upphafi skólaárs fara yfirleitt fram eftir skólatíma, jafnvel á kvöldin og um helgar. Auk keppnisliðsins sem þau Óskar Aron Stefánsson, Íris Helga Aradóttir og Alexander Viktor Jóhannesson skipuðu voru í æfingahóp þau Ásta Aliya Friðriksdóttir, Dagný Sara Viðarsdóttir og Bernado Tino Haensel Andrésson.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga