Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 18. janúar 2023 - kl. 15:59
Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra uppfærð

Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra hefur verið uppfærð og gildir frá 2023-2032. Húsnæðisáætlanir voru fyrst unnar í fyrra en þeim er ætlað að draga fram mynd af því hver staða húsnæðismála er í hverju sveitarfélagi fyrir sig, greina framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum og setja fram áætlun um hvernig sveitarfélög ætla að mæta húsnæðisþörf til skemmri og lengri tíma.

Helsta breytingin í húsnæðisáætlun Húnaþings vestra milli ára eru uppfærðar mannfjöldaspár. Í áætluninni eru dregnar upp þrjár mismunandi sviðsmyndir með tilliti til mannfjölda, þ.e. lágspá, miðspá og háspá. Íbúðaþörf er reiknuð út miðað við forsendur sem mannfjöldaspárnar gefa, sem og þjónustuþörf.

Á vef Húnaþings vestra kemur fram að í áætluninni sem gefin var út í fyrra hafi verið sett fram háspá yfir mannfjölda sem þótti metnaðarfull, en að sú spá hafi ræst. Mannfjöldaspár í nýju áætluninni hafi því verið uppfærðar og byggja á háspánni frá því í fyrra. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir því að íbúum í sveitarfélaginu fjölgi um 4,7% á þessu ári og um 2% á næsta ári. Þann 1. janúar síðastliðinn var íbúafjöldi í Húnaþingi vestra 1.253.

Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra má lesa hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga