Fréttir | 20. janúar 2023 - kl. 10:38
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps náði loks að halda árshátíð

Á vef Feykis er sagt frá því að loksins hafi Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps náð að halda árshátíð eftir kórónuveirutakmarkanir síðastliðna tvo vetur. Samkvæmt venju var árshátíð kórsins haldin í Húnaveri á laugardaginn og var hún vel sótt. Meðal atriða á dagskrá kvöldsins var að heiðra þá félaga sem átt höfðu merkisafmæli frá síðustu árshátíð sem haldin var í janúar 2020.

Rætt er við Guðmund Valtýsson, einn kórfélaga og segir hanna að um 140 manns hafi mætt á árshátíðina. „Það var ýmislegt til skemmtunar, grín og mikill kórsöngur, sungum líklega tólf lög. Einnig kom fulltrúi frá Rökkurkórnum, Valborg Hjálmarsdóttir, og flutti okkur góðan pistil. Sá kór er ekki starfandi núna en hefur verið okkar gestir í mörg ár og við buðum þeim að koma og taka þátt í þessu með okkur sem þau gerðu vel. Svo var þarna skínandi hljómsveit úr Skagafirði, Norðlensku molarnir,“

Guðmundur segir ýmislegt vera á döfinni en framundan eru mikil tímamót hjá kórnum þegar heil öld verður liðin síðan hann hóf starfsemi. „Við erum að veltast í því núna að nálgast 100 ára afmæli kórsins, sem verður árið 2025. Það nálgast ískyggilega og erum við farnir að velta því fyrir okkur og búa okkur undir mikil hátíðarhöld þá.“ Ef litið er nær þá segir Guðmundur að í vetur sé stefnt á suðurferð og ýmislegt verði gert í nærumhverfinu sem auglýst verði síðar.

Sjá nánar á www.feykir.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga