Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:09 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:09 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:09 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:09 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:09 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:09 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Lesendur Húnahornsins hafa valið Bryndísi Bragadóttur sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2022. Bryndís er hárgreiðslukona á Blönduósi og hefur hún klippt og snyrt hár Blönduósinga og nærsveitunga í tæp 40 ár. Bryndís opnaði hárgreiðslustofu á Blönduósi árið 1987 en lét staðar numið nú um áramótin. Þórdís Erla Björnsdóttir, sem var hárgreiðslunemi hjá Bryndísi, tók við rekstrinum. Tilkynnt var um niðurstöðuna í valinu á Blöndublóti sem fram fór í Félagsheimilinu á Blönduósi í kvöld.
Í innsendri tilnefningu um Bryndísi segir m.a.: „Bryndís hefur staðið klippivaktina á Blönduósi í nánast 40 ár, hún er ósérhlífin og dugleg og ekki sjálfgefið í dag að fólk endist svona lengi í þessum bransa. Hún er alltaf tilbúin til að bjarga eða redda málunum þegar upp koma „neyðartilvik“ fyrir stórviðburði. Bryndís hugsar einnig vel um eldra fólkið okkar og fer upp á sjúkrahús og klippir og snyrtir vistfólk þar sem á ekki heimangengt.“
Allir sem sendu inn tilnefningu er þökkuð þátttakan sem var með ágætum. Fjölmargir fengu verðskuldaða tilnefningu en langflestar féllu þær Bryndísi í skaut.
Þetta er í 18. sinn sem lesendur Húnahornsins velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu.
Menn ársins síðustu ár eru þessir:
2022: Bryndís Bragadóttir
2021: Karólína Elísabetardóttir
2020: Valdimar Guðmannsson
2019: Björgunarsveitarfólk úr Björgunarfélagið Blöndu
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzson Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir
2009: Bóthildur Halldórsdóttir
2008: Lárus Ægir Guðmundsson
2007: Rúnar Þór Njálsson
2006: Lárus B. Jónsson
2005: Lárus B. Jónsson
Húnahornið óskar Bryndísi til hamingju með útnefninguna.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |