Fréttir | 01. febrúar 2023 - kl. 14:39
Lífshlaupið ræst í dag

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. Lífshlaupið er góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig og skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið.

En auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sín á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur. Fullorðnir að lágmarki 30 mínútur á dag og börn og unglingar að lágmarki 60 mínútur á dag.

Lífshlaupið stendur fyrir:

  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
  • Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
  • Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Sjá nánar á www.lifshlaupid.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga