Frá æfingu
Frá æfingu
Um 40 manns taka þátt í undirbúningi sýningarinnar
Um 40 manns taka þátt í undirbúningi sýningarinnar
Fréttir | 02. febrúar 2023 - kl. 20:38
Æfingar hafnar á Himni og jörð

Æfingar eru hafnar hjá Leikflokki Húnaþings vestra á söngleiknum Himinn og jörð eftir Ármann Guðmundsson en söngleikurinn er sérsaminn fyrir leikflokkinn við 16 lög Gunnars Þórðarsonar. Um 40 manns taka þátt í undirbúningi sýningarinnar enda verkin ófá, að sögn Ingibjargar Jónsdóttur, kór-og hljómsveitarstjóra. Nefnir hún að um sex stúlkur sjái meðal annars um barnapössun enda margir foreldrar þátttakendur í verkinu.

Kór- og hljómsveitaræfingar hófust í byrjun janúar og leikæfingar seinni hluta þess mánaðar. Höfundurinn, Ármann Guðmundsson, er einnig leikstjóri verksins. Ingibjörg segir að áætlaðir sýningardagar séu um komandi páska og verði þeir auglýstir nánar síðar ásamt ýmsum tilboðum sem verða í boði í samvinnu við matar- og gististaði í Húnaþingi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga