Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 05. febrúar 2023 - kl. 07:26
Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna i fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem framundan er. Appelsínugul veðurviðvörun Veðurstofunnar tekur gildi  klukkan 11 í dag á Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.

Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á því svæði þar sem veðrið er verst.  Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og líkur á fokstjóni eru verulegar.

Búið er að boða til samráðsfundar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra klukkan 11 í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspá er slæm. Einnig hefur verið ákveðið að virkja samhæfingarstöð almannavarna klukkan 10 í dag.

Samkvæmt Veðurstofunni er von á  sunnan stormi og miklu roki, 20-28 m/s. Búast má við mjög snörpum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s. Ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón og er fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Sjá nánar á www.vedur.is.

Á www.umferdin.is er hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga