Fréttir | 05. febrúar 2023 - kl. 13:54
Félagsvist í Glaðheimum á Blönduósi

Þriggja kvölda félagsvist verður í Glaðheimum á Blönduósi dagana 6. febrúar, 13. febrúar og 20. febrúar. Húsið verður opnað kl. 19:15 en byrjað verður að spila kl. 19:30. Hvert kvöld kostar kr. 1.500 (enginn posi) og er kaffi og meðlæti innifalið í verðinu.

Stigahæsti einstaklingurinn fær verðlaun eftir hvert kvöld. Einnig verða setuverðlaun og verðlaun fyrir þann sem er með flest stig í heildina eftir öll kvöldin.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga