Jónína Margrét Guðbjartsdóttir. Ljósm: Akureyri.net
Jónína Margrét Guðbjartsdóttir. Ljósm: Akureyri.net
Fréttir | 11. mars 2023 - kl. 15:07
Jónína Margrét setur landsliðsskautana á hilluna

Blönduósingurinn Jónína Margrét Guðbjartsdóttir, landsleikjahæsta kona Íslands í íshokkí, hefur ákveðið að leggja landsliðskautana á hilluna. Jónína, sem er nýorðin 42 ára og varð Íslandsmeistari í 21. skipti með SA á dögunum, er fædd og uppalin á Blönduósi, dóttir hjónanna Guðbjarts Guðmundssonar og Margrétar Ásmundsdóttur og bjó á sínum uppvaxtarárum við Húnabrautina.

Jónína reif liðband í hné fyrir rúmum mánuði, náði þó að taka þátt í úrslitarimmunni um Íslandsbikarinn en treystir sér ekki með landsliðinu á HM sem fram fer í Mexíkó í næsta mánuði.

Jónína ákvað að láta gott heita með landsliðinu og sagði í viðtali við Akureyri.net að líkaminn hafi ekki getað fylgt huganum og hjartanu og því komið gott.

Jónína segir einnig í viðtalinu að landslið Íslands hafi farið erlendis í fyrstu keppnisferðina, til Nýja Sjálands 2005 og hún með í för og segist eingöngu hafa misst af landsliðsferð þegar hún var komin átta mánuði á leið með drenginn sinn 2011.

Jónína er leikjahæsta landsliðskona Íslands. Hana minnir að landsleikirnir séu 66, þar af 63 á HM og þrír í undankeppni Ólympíuleikanna. Hún hefur unnið tvö gull á HM í þeirra deild segir Jónína.

Í frétt Akureyri.net segir Jónína: „Ég var í fyrsta kvennaliði SA þegar það byrjaði vorið 2000 og keppti í fyrsta skipti um Íslandsmeistaratitilinn, var í fyrstu landsliðsferðinni sem keppti á HM og í fyrstu undankeppninni fyrir Ólympíuleikana“.

Sannarlega glæsilegum landsliðsferli lokið en Jónína á eftir að ná nýjasta takmarkinu, það er að verða Íslandsmeistari ásamt dóttur sinni með liði SA.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga