Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 01:30 | N 5 | -8°C |
Laxárdalsh. | 01:30 | ANA 4 | -7°C |
Vatnsskarð | 01:30 | NNA 3 | -5°C |
Þverárfjall | 01:30 | NA 6 | -4°C |
Kjalarnes | 01:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:30 | V 1 | -5°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Lögreglan á Norðurlandi vestra, ásamt Menntasetri lögreglunnar, hefur undanfarna mánuði tekið þátt í lögregluhunda verkefni ásamt pólsku lögreglunni. Verkefnið gengur undir vinnuheitinu „K9 Europe“ og fjallar um þjálfun og notkun lögregluhunda. Í desember síðastliðnum komu tíu lögreglumenn frá Póllandi til Íslands og kynntu sér starfsemi löggæsluhunda og tókst sú heimsókn með ágætum, að því er fram kemur í facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
Í síðustu viku sóttu svo tíu hundaþjálfarar lögreglu, tollgæslu og Fangelsismálastofnunar, auk fulltrúa Menntaseturs lögreglunnar Pólverja heim. Í facebookfærslu lögreglunnar segir að móttökurnar sem hópurinn fékk hafi verið sérlega góðar.
Þar segir einni: „Samstarf sem þetta er mikilvægt fyrir starfsemi lögreglunnar ekki síst m.t.t. framþróunar. Í Póllandi eru starfræktir fimm lögregluskólar og heimsótti hópurinn m.a. einn þeirra skóla. Þar voru nemendur um eitt þúsund talsins og var aðstaða þar öll eins og best verður á kosið. Þá var sóttur heim hundaskóli lögreglunnar en þar eru að jafnaði fimmtíu til eitt hundrað nemendur í senn ásamt hundum. Það hefur sýnt sig í umræddu verkefni að við getum lært margt af pólsku starfssystkinum okkar og eins þau af okkur og er markmiðið m.a. að deila þekkingu og reynslu í þeirri von að efla enn frekar starf löggæsluhunda landanna.
Margir kunna að halda að löggæsluhundar nýtist einvörðungu til að finna fíkniefni og sprengiefni. Því fer hins vegar fjarri því í löndunum í kringum okkur þá eru hundar nýttir í svo mikið meira er snýr að löggæslu, eins og valdbeitingu, mannfjöldastjórnun, lífsýnaleitir, spor og -víðavangsleitir, leitir af tölvuíhlutum (minniskortum og fl.) og margt fleira. Vonandi munu aukin og fjölbreytt verkefni felast í framtíð löggæsluhunda á Íslandi. Verkefnið „K9 Europe“ mun halda áfram og fyrirhugaðar eru fleiri heimsóknir og vinnulotur á næstu misserum.“

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |