Unnur Valborg og Daníel handsöluðu samning í byrjun árs. Mynd: hunathing.is
Unnur Valborg og Daníel handsöluðu samning í byrjun árs. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 22. mars 2023 - kl. 16:26
Aukin hinsegin fræðsla á landsbyggðinni

Sveitarfélögum sem hafa samið við Samtökin '78 um hinsegin fræðslu og ráðgjöf, fer fjölgandi. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri samtakanna segir það mikið framfaraskref að festa í sessi hinsegin fræðslu um landið allt og að flest sveitarfélögin sækist eftir fræðslu í skólana, bæði fyrir nemendur og starfsfólk. Húnaþing vestra er eitt þeirra sveitarfélaga sem gert hafa samstarfssamning við samtökin.

Fjallað er um þetta á vef Ríkisútvarpsins og þar kemur fram að fjórir samningar hafi verið undirritaði í fyrra og viðræður standi yfir víða um land. Vesturbyggð bættist í hópinn í gær og á teikniborðinu séu samningar við til dæmis Múlaþing, Grundarfjarðarbæ og Akureyrarbæ.

Í samtali við Ríkisútvarpið segir Daníel samningana mikilvægan þátt í að tryggja öfluga hinsegin fræðslu um landið allt. „Fræðlslan okkar er um fjölbreytileikann, það megi vera allskonar og að við eigum að vera opin fyrir fólki og sýna virðingu. Það er rauði þráðurinn í fræðsluerindunum okkar, það er ekki flóknara en það,“ segir Daníel.

Húnaþing vestra tilkynnti á vef sínum í byrjun ársins að sveitarfélagið hefði gert samstarfssamning við Samtökin ´78 og fjallar hann um reglubundna fræðslu samtakanna um hinsegin málefni fyrir starfsfólk grunnskóla, leikskóla og félagsmiðstöðvar, nemenda grunnskóla og til stjórnenda sveitarfélagsins til næstu þriggja ára. Samningurinn ber með sér afar umfangsmikla fræðslu til starfsfólks og barna og ungmenna í sveitarfélaginu. Í samningnum felst líka aðgengi allra íbúa sveitarfélagsins að ráðgjöf Samtakanna '78 án endurgjalds.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga