Lara Kroeker með fiðluna. Mynd: tonhun.is
Lara Kroeker með fiðluna. Mynd: tonhun.is
Fréttir | 24. mars 2023 - kl. 09:26
Tónlistarskóli A-Hún. fékk fiðlu að gjöf

Tónlistaskóli Austur-Húnvetninga fékk höfðingleg gjöf í gær en þá kom í heimsókn Lara Kroeker frá Vancouver í Kanada og færði skólanum fiðlu að gjöf. Lara dvelur í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd og langaði að færa skólanum fiðluna sem þakklætisvott til samfélagsins fyrir góðar móttökur, að því er segir á vef Tónlistarskóla A-Hún.

Lara ætlar að halda tónleika í Menningarhúsinu Bjarmanesi næstkomandi mánudag klukkan 20:30 og eru allir hvattir til að mæta og hlusta á hana og tónlistina sem hún hefur verið að semja síðustu vikur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga