Óli Arnar og Palli Friðriks. Mynd: Feykir.is / Klara Björk
Óli Arnar og Palli Friðriks. Mynd: Feykir.is / Klara Björk
Fréttir | 20. maí 2023 - kl. 22:28
Ritstjóraskipti á Feyki 1. ágúst nk.

Óli Arnar Brynjarsson tekur við sem ritstjóri héraðsfréttablaðsins Feykis af Páli Friðrikssyni sem gegnt hefur starfinu í samtals 13 ár. Ritstjóraskiptin eiga sér stað 1. ágúst næstkomandi. Óli Arnar hefur starfað hjá Nýprenti í 18 ár og unnið að einu eða öðru leyti við Feyki í tæp 20 ár. Páll ætlar að fara að vinna hjá Mjólkursamlagi KS en hann hvetur alla til að taka vel á móti nýjum ritstjóra.

Sagt er frá þessu á vef Feykis. Þar kemur fram að Óli Arnar hefur að mestu unnið við uppsetningu og hönnun á Nýprenti meðfram því að skrifa íþróttafréttir og einnig haldið utan um nokkra fasta þætti í Feyki í gegnum árin. Skrifin hafa svo undið nokkuð upp á sig síðari árin, sérstaklega eftir að fækkað var um eitt starfsgildi á Feyki.

„Það er áskorun að taka við sem ritstjóri Feykis en ég reikna með að það verði engar stórvægilegar breytingar á blaðinu við þessi tímamót. Að minnsta kosti hefur umsjónarmaður vísnaþáttarins lofað að halda sínu starfi áfram og stefnir ótrauður á 900. þáttinn,“ segir Óli Arnar á vef Feykis.

Haft er eftir Páli að hann ætli nú að láta staðar numið í bili að minnsta kosti. Hann hafi starfað á Feyki í samtals 13 ár og að það hafi aldrei verið ætlunin að klára starfsævina þar. „Ég er menntaður í matvælageiranum og held á þau mið aftur en nú hjá Mjólkursamlagi KS. Mig langar til að þakka lesendum Feykis fyrir samstarf og velvild þessi ár mín á blaðinu og hvet alla til að taka vel á móti nýjum ritstjóra. Blaðið á bjarta framtíð fyrir sér ef lesendur halda áfram tryggð við Feyki,“ segir fráfarandi ritstjóri.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga