Fréttir | 24. maí 2023 - kl. 21:32
Vegið alvarlega að skipulagsvaldi sveitarfélaga

Byggðarráð Húnaþings vestra telur að vegið sé alvarlega að skipulagsvaldi sveitarfélaga með frumvarpi innviðaráðherra um breytingu á ýmsum lögum vegna tímabundinna undanþága frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í lok apríl og gekk til umhverfis- og samgöngunefndar í byrjun maí.

Með frumvarpinu eru umráð yfir skipulags- og byggingamálum við tilteknar aðstæður færð frá sveitarfélagi til Skipulagsstofnunar að fenginni beiðni frá Vinnumálastofnun. Sveitarfélög eru þar með orðin umsagnaraðilar í slíkum málum.

Í umsögn byggðarráðs til umhverfis- og samgöngunefndar segir að með frumvarpinu sé skapað hættulegt fordæmi til framtíðar í skipulags- og byggingamálum. Sveitarfélögum sé engu að síður fært það hlutverk að tilkynna nærliggjandi lóðarhöfum um breytingarnar sem sé fráleitt miðað við það veigalitla hlutverk sem þeim er ætlað í ferlinu að öðru leyti.

Þá bendir byggðarráð á að með frumvarpinu eru starfsmenn skipulags- og byggingafulltrúa hjá sveitarfélögunum, ásamt starfsmönnum eldvarnaeftirlits og heilbrigðiseftirlits settir í þá stöðu að vinna gegn þeim reglum sem í gildi hafa verið um langt árabil. Þannig sé þeim gert að vinna gegn eigin vitneskju og samvisku með því að taka ábyrgð á að setja fólk í afar viðkvæmri stöðu í húsnæði sem mögulega sé ófullnægjandi.

„Byggðarráð gerir á engan hátt lítið úr þeirri erfiðu stöðu sem uppi er varðandi húsnæðismál flóttamanna og hælisleitenda. Lausn vandans getur þó ekki falist í að safna þessum viðkvæma hópi fólks saman í húsnæði sem fáir létu bjóða sér og um leið brjóta á grundvallarrétti sveitarfélaga til að fara með skipulagsvald,“ segir í umsögninni sem sent hefur verið til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga