Hvammstangi. Mynd. hunathing.is/google.maps
Hvammstangi. Mynd. hunathing.is/google.maps
Fréttir | 25. maí 2023 - kl. 15:38
Götumyndir í Húnaþingi vestra uppfærðar

Húnaþing vestra og Sýndarferð ehf. hafa gert samkomuleg um 360 gráðu ljósmyndun af götum Hvammstanga, Laugarbakka og Borðeyrar í sumar. Google mun í framhaldinu gera myndirnar aðgengilegar á Google Maps en myndir sem þar eru af þessum stöðum voru teknar árið 2013. Frá þeim tíma hefur ýmislegt breyst auk þess sem ekki voru teknar myndir af öllum götum á Hvammstanga og ekkert myndað á Laugarbakka né Borðeyri.

Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og þar segir:

„Street View“ myndir eru í dag mikilvægar fyrir bæði íbúa og ferðamenn. Þær nýtast ferðamönnum við að rata um þorp og bæi, uppgötva spennandi áfangastaði og gagnast við undirbúning ferða svo fátt eitt sé nefnt. Ljósmyndir sem teknar voru fyrir áratug geta verið misvísandi og villandi þar sem umhverfi hefur breyst, ný hús byggð, þjónustuaðilar bæst við o.s.frv. Google hefur gefið út að ekki er á dagskrá að koma til Íslands á næstunni og treystir Íslendingum til að uppfæra myndirnar.

Líkt og á þeim myndum sem nú eru aðgengilegar verða allar persónugreinanlegar upplýsingar afmáðar, svo sem bílnúmer og andlit.

Eysteinn Guðni Guðnason forsvarsmaður Sýndarferðar ehf. mun verða á ferðinni í júní eða júlí til að taka myndirnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga