Ásgarður. Mynd: skagastrond.is
Ásgarður. Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 25. maí 2023 - kl. 15:55
Endurbygging Ásgarðs frestast fram á næsta ár

Á fundi hafnar- og skipulagsnefndar Skagastrandar á mánudaginn greindi sveitarstjóri frá því að fyrirhugaðar framkvæmdir við endurbyggingu Ásgarðs í Skagastrandarhöfn muni frestast fram til ársins 2024 en verkið er unnið í samstarfi við Vegagerðina. Fram kom að val á lægstbjóðanda vegna stálkaupa hafi verið kært vegna tæknilegrar kröfu eftir opnun tilboða sem fram fóru hjá Vegagerðinni í desember síðastliðnum. Kærumálið sé enn í vinnslu og niðurstöðu ekki að vænta fyrr en í lok þessa mánaðar.

Í fundargerð nefndarinnar segir að ef efniskaupin geti farið af stað aftur sé um tólf vikna afhendingartími og kæmi efnið þá væntanlega í september eða október. Verkið sé þess eðlis að það er erfiðleikum háð að vinna það yfir vetrarmánuðina og því sé það mat Vegagerðarinnar að það sem betra að fresta framkvæmdum fram á næsta ár. Vilji er hjá Vegagerðinni að bjóða efniskaupin út aftur.

Tengd frétt:

Endurbygging Ásgarðs í Skagastrandarhöfn

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga