Tilkynningar | 26. maí 2023 - kl. 11:09
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hættir móttöku á Blönduósi
Tilkynning til íbúa Húnavatnssýsla um skerðingu á þjónustu við heyrnarskerta íbúa

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands þykir leitt að tilkynna að stofnunin er knúin til að leggja niður þá móttöku heyrnarsviðs sem staðið hefur til boða á Blönduósi mánaðarlega síðustu ár. Síðasti afgreiðsludagur að sinni hjá Sofiu Dalman, heyrnarfræðingi HTÍ, er mánudaginn 12. júní nk.

Heyrnarskertum íbúum svæðisins, sem þurfa að sækja þjónustu til HTÍ er bent á afgreiðslustaði HTÍ á Sauðárkróki, Akureyri eða Reykjavík.

Stofnunin vonast til að geta bætt þjónustu að nýju með tíð og tíma.

Við þökkum starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi kærlega fyrir samstarfið undanfarin ár og biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á stöðunni.

Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.

Heyrnar- og talmeinastöð er heilbrigðisstofnun ríkisins og fellur undir heilbrigðisráðuneyti. Stofnunin er miðstöð þjónustu við heyrnarskerta og heyrnarlausa sem og fólk með ýmis talmein.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga