Skjáskot úr fréttum Stöðvar 2
Skjáskot úr fréttum Stöðvar 2
Fréttir | 27. maí 2023 - kl. 09:47
Biður ferðamenn að stoppa á Blönduósi

Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð, biðlar til íslenskra og erlendra ferðamanna, um að stoppa á Blönduósi þegar þeir keyra í gegnum bæjarfélagið og ekki einungis til að fara á salerni eða að fá sér pylsu. Um sjö hundruð þúsund bílar fara í gegnum Blönduós árlega og fæstir stoppa á staðnum, að því er segir í frétt á Vísi.

Magnús Hlynur Hreiðarsson, hinn skeleggi fréttamaður Stöðvar 2, heimsótti sveitarstjórann nýverið og má sjá afraksturinn hér.

„Blönduós er ekki bara pylsa en það er kannski þannig, sem flestir landsmenn þekkja Blönduós að keyra í gegnum bæinn og mögulega að stoppa á N1 og fá sér eina pullu,“ segir Pétur Arason í viðtalinu.

“Við viljum endilega fá fólkið til þess að stoppa og skoða okkur aðeins betur af því að hér er margt að gera og til dæmis síðustu fimm árin eða meira jafnvel hefur sundlaugin alltaf verið að trekkja meira og meira að og er orðin svolítið þekkt á meðal fjölskyldufólks, sem stoppar hér og slakar á áður en það heldur síðan sínu ferðalagi áfram,“ bætir Pétur við og hvetur alla til að beygja aðeins inn í bæinn í sumar þegar þeir keyra í gegn.

„Hér er margt að sjá og margt að upplifa. Það er komin nýr veitingastaður og nýtt hótel og svo eru náttúrulega veitingastaðir hér fyrir þannig að það er bara um að gera að tékka á þessu. Og svo má ekki gleyma Prjónagleðinni, sem verður aðra helgina í júní á Blönduósi og Húnavakan verður um miðjan júlí, þannig að við hlökkum bara öll mikið til sumarsins,“ segir Pétur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga