Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:51 0 0°C
Laxárdalsh. 11:51 0 0°C
Vatnsskarð 11:51 0 0°C
Þverárfjall 11:51 0 0°C
Kjalarnes 11:51 0 0°C
Hafnarfjall 11:51 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Pistlar | 05. júní 2023 - kl. 09:41
Virði en ekki byrði
Eftir Ásgerði Pálsdóttur

Það kom ánægjulega á óvart sú niðurstaða KPMG í verkefninu ,Það er gott að eldast, að eldra fólk, það er að segja 67+, skilaðu 12 milljörðum meira til sveitarfélaganna í formi útsvars og fasteignagjalda, heldur en það sem sveitarfélögin lögðu til þjónustu við þennan aldurshóp. Þetta verkefni, Það er gott að eldast, er unnið á vegum þriggja ráðuneyta, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Landssambandi eldri borgara. 

Það hefur einhvern veginn verið álitið að umræddur hópur væri  byrði á samfélaginu en það er nú eitthvað annað. Félög eldra fólks með LEB, Landssamband eldri borgara, í broddi fylkingar hafa verið að benda á að nýja nálgun þurfi í málefnum þessa stóra og ört stækkandi hóps, sem ráðamenn bæði í sveitarstjórnum og landsstjórninni hafa ekki sinnt sem skyldi.

Allir hljóta  nú að að sjá hversu miklar brotalamir eru í allri umgerð um málefni eldra fólks.

Lífeyrisgreiðslur almannatrygginga til eldra fólks eru einhverjar þær lægstu á Norðurlöndunum en skattlagningin er á hinn veginn. Nú sést svart á hvítu að eldri borgarar skila meiru til samfélagsins en þeir fá þaðan. Þeir þurfa þó á þjónustu að halda eins og yngra fólk og í sumum tilfellum umönnun og hjúkrun

Á landsfundi LEB 9. maí síðastliðinn var eftirfarandi ályktun samþykkt:

Eldra fólk getur ekki beðið lengur. Nú verður að hefjast handa

”Landssamband eldri borgara lýsir yfir miklum vonbrigðum með aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í kjaramálum eldra fólks. Þrátt fyrir yfirlýst markmið í stjórnarsáttmálanum og kosningaloforð um að draga úr skerðingum og jaðarsköttum, hafa efndir engar orðið. Í drögum að fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 eru engin fyrirheit um lagfæringar á kjörum eldra fólks. Landsfundur LEB 2023 krefst þess að strax verði gripið til aðgerða til að rétta hlut eldra fólks og hafin verði vinna við að draga úr skerðingum í almannatryggingakerfinu.”

Ríkið hefur farið fram með miklar skerðingar löngu áður en almennir launþegar hafa greitt fulla starfsævi til síns lífeyrissjóðs og fá því ekki fullan lífeyri þaðan í dag.

Í hópi eldra fólks er fjöldi sem býr við óásættanleg kjör sem fara  síversnandi í stjórnlausri verðbólgu. Það er nefnilega þannig að þótt tekjuhæstu hópar eldra fólks búi við góð kjör þá er stór hluti illa settur og kjör þeirra fara versnandi eins og annarra lágtekjuhópa.

Það eru allmargir sem hafa ekkert sér til framfærslu nema greiðslur frá almannatryggingum sem eru nú kr. 307.829 á mánuði, og munar nú um 95 þúsundum á þeirri upphæð og lægsta kauptaxta. Þetta voru sambærileg upphæðir fyrir einhverjum árum.

Þeir sem fá greiðslur úr lífeyrissjóði hafa frítekjumark upp að 25 þúsund krónum. Eftir þær er greiðslan frá TR skert um 45%.

Það er nokkuð villandi sem kom fram í samantekt KPMG að meðaltekjur lífeyrisþega væru nú 97% af meðallaunum. KPMG var með aldursbilið frá 65 ára en ekki 67 ára og flestir í 65 ára hópnum eru enn á vinnumarkaði og margir reyndar til sjötugs.

Þannig að það þyrfti að miða við 70 ára til að fá sannari mynd en við vitum líka að í efstu 10-20% tekjuhópum eldra fólks eru margir mjög vel stæðir sem betur fer, og þeir hífa upp meðaltalið, enda þekki ég frá minni fyrri vinnu að meðaltalstölur segja ekki allan sannleikann.

LEB hefur einnig beint athygli sinni að þeirri óskilvirkni sem fylgir því er að lög um málefni eldra fóks heyrir undir tvö ráðuneyti, heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti. Þar gilda margir og sundurleitir lagabálkar eins og almannatryggingalögin sem fáir skilja.

En til að gera flækjustigið enn meira þá heyrir þjónusta við eldra fólk undir tvö stjórnsýslustig, ríki og sveitarfélög. Það veldur sífelldri togsteitu og aðilar geta vísað hver á annan og sá sem geldur fyrir þetta fyrirkomulag er sá sem þjónustuna á að fá.

Í hugmyndinni í verkefninu Það er gott að eldast, er gengið út frá því að þjónusta við eldra fólk, sem geti staðið undir nafninu velferðarþjónusta, verði nútímaleg og tryggi lífsgæði íbúa og stuðli að því að fólk geti búið lengur heima  með tilliti til öryggis og félagslegra þátta.

Algerlega nauðsynlegt er að samþætta félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu og nota til þess m.a. tæknina sem til er. Þetta er farið að gera í Reykjavík að einhverju marki og kannski fleiri sveitarfélögum.

Svo ættu menn að muna að eldri kynslóðin byggði upp samfélagið sem við búum í. Það getur ekki verið ósanngjörn krafa að þeir sem hafa lágan lífeyri setji hann ekki að mestu í til að fjármagna rekstur samfélagsins, heldur geti lifað með reisn og notið ævikvöldsins.

Ásgerður Pálsdóttir

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið