Fréttir | 05. júní 2023 - kl. 13:51
Stjórnsýsluverkefni Innheimtustofnunar til sýslumannsins á Norðurlandi vestra

Verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga, þar á meðal innheimta meðlaga, munu færast til ríkisins frá og með 1. janúar 2024. Í lok síðustu viku samþykkti Alþingi lagafrumvarp innviðaráðherra um breytingar á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra á Blönduósi mun taka að sér stjórnsýsluverkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga, en sýslumenn eru innheimtumenn ríkissjóðs. Sagt er frá þessu á vef Stjórnarráðsins.

Markmiðið með tilfærslu verkefnanna til ríkisins er að skapa trausta umgjörð um innheimtu meðlaga og annarra framfærsluframlaga, einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, stuðla að jákvæðri þróun starfseminnar og bæta þjónustu við meðlagsgreiðendur.

Innviðaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið komust að sameiginlegri niðurstöðu um að í ljósi langrar reynslu sýslumannsembættanna af innheimtu ýmissa opinberra gjalda og góðs árangurs innheimtumiðstöðvarinnar á Blönduósi, væri verkefnið best staðsett hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra, þótt aðsetur starfsfólks verði einnig áfram á höfuðborgarsvæðinu og á Ísafirði.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga