Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 22. september 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
September 2023
SMÞMFL
272829303112
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:00 N 6 3°C
Laxárdalsh. 14:00 ANA 6 4°C
Vatnsskarð 14:00 ANA 4 2°C
Þverárfjall 14:00 NNA 4 2°C
Kjalarnes 14:00 102.0 8 7°C
Hafnarfjall 14:00 N 4 7°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
19. september 2023
Eftir Svölu Runólfsdóttur, Elínu S. Sigurðardóttur og Dagnýju Sigmarsdóttur
13. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
12. september 2023
57. þáttur. Eftir Jón Torfason
10. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
09. september 2023
Eftir Sigurjón Þórðarson, varaþingmanns Flokks fólksins í NV-kjördæmi
04. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. ágúst 2023
Fréttir | 13. september 2023 - kl. 11:22
Ekkert gengur að slíta byggðasamlögum

Lítið sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt um að slíta byggðasamlögum um Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga og Félags- og skólaþjónustu A-Hún. Húnabyggð óskaði eftir slitum á byggðasamlögunum fyrir tæpu ári síðan en áður höfðu öll aðildarsveitarfélögin samþykkt slit á Byggðasamlagi um menningar- og atvinnumál. Málið var rætt á sveitarstjórnarfundi Húnabyggðar í gær og lítur sveitarstjórnin þannig á málið að þau samningstilboð sem sett voru fram af Húnabyggð séu nú út af borðinu, enda hafi þeim ekki verið svarað.

Fram kemur í fundargerð sveitarstjórnar að við vinnu á slitum Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál hafi slitastjórn verið sammála um að slíta þyrfti öllum byggðasamlögum samtímis. Síðan þá hafi forsvarsfólk sveitarfélaganna haldið nokkra fundi um hvernig slitin gætu farið fram, en Húnabyggð óskaði eftir því að þau gætu farið fram sem fyrst, þ.e. fyrir lögbundin tveggja ára slitafrest sem væri í árslok 2024. Að málinu hafi einnig komið ráðgjafar frá KPMG sem sett hafi fram tillögur að tilstillan Húnabyggðar. Á þeim tíma sem liðin er hafi lítið sem ekkert þokast í samkomulagsátt og líti Húnabyggð þess vegna á málið þannig að ekki liggi fyrir vilji hjá Skagaströnd og Skagabyggð um að slíta byggðasamlögunum fyrr en í árslok 2024.

„Þannig lítur sveitarstjórn Húnabyggðar svo á að þau samningstilboð sem Húnabyggð hefur þegar sett fram séu af borðinu, enda hefur þeim ekki verið svarað. Af þeim sökum áskilur sveitarstjórn Húnabyggðar sér rétt til að taka málið áfram út frá hagsmunum sveitarfélagsins og íbúa þess,“ segir í fundargerð sveitarstjórnar Húnabyggðar frá því í gær.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið