Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 22. september 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
September 2023
SMÞMFL
272829303112
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:40 N 5 3°C
Laxárdalsh. 13:40 ANA 6 4°C
Vatnsskarð 13:40 ANA 4 2°C
Þverárfjall 13:40 NNA 4 2°C
Kjalarnes 13:40 92.0 7 7°C
Hafnarfjall 13:40 NNA 4 7°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
19. september 2023
Eftir Svölu Runólfsdóttur, Elínu S. Sigurðardóttur og Dagnýju Sigmarsdóttur
13. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
12. september 2023
57. þáttur. Eftir Jón Torfason
10. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
09. september 2023
Eftir Sigurjón Þórðarson, varaþingmanns Flokks fólksins í NV-kjördæmi
04. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. ágúst 2023
Fréttir | 14. september 2023 - kl. 07:24
Mikilvægi Blönduósflugvallar áréttað

Sveitarstjórn Húnabyggðar áréttar í fundargerð sinni frá 12. september síðastliðnum mikilvægi Blönduósflugvallar. Völlurinn sé sá eini á svæðinu milli fjallvega um Holtavörðuheiði, Þverárfjall og Vatnsskarð og gegnir því mikilvægu hlutverki sem sjúkraflugvöllur. Tilefnið eru alvarleg umferðarslys á þjóðvegi eitt í sumar. Í bókun sveitarstjórnar segir að það sé gríðarlega mikilvægt að áform sem fram koma í drögum að samgönguáætlun um lagningu bundins slitlags á Blönduósflugvöll nái fram að ganga.

Bókunin er þessi í heild sinni:

„Mikil umferð um þjóðveg 1 kallar á að viðbúnaður sé til staðar til að bregðast við slysum. Blönduósflugvöllur er eini flugvöllurinn á svæðinu milli fjallveganna um Holtavörðuheiði og Þverárfjall/Vatnsskarð og gegnir því mikilvægu hlutverki sem sjúkraflugvöllur þegar hver mínúta skiptir máli fyrir slasaða eða sjúka einstaklinga. Bundið slitlag og traust undirlag er forsenda þess að flugvöllurinn sé nothæfur þegar á þarf að halda og að öryggi flugáhafna og farþega sé tryggt sbr. niðurstöður og tillögur starfshóps um öryggi flugvalla og lendingarstaða frá nóvember 2021. Það er því gríðarlega mikilvægt að þau áform sem koma fram í drögum að samgönguáætlun um lagningu bundins slitlags á Blönduósflugvöll nái fram að ganga.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið