"Meintur" eldislax í teljara í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Ytri einkenni geta bent til eldisuppruna. Mynd: NASF
"Meintur" eldislax í teljara í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Ytri einkenni geta bent til eldisuppruna. Mynd: NASF
Fréttir | 14. september 2023 - kl. 13:07
Aðgerðir Fiskistofu vegna eldislaxa í ám

Fiskistofa hefur sent bréf til Landssambands veiðifélaga er varðar aðgerðir vegna eldislaxa í ám á Íslandi. Með hliðsjón af aðstæðum beinir Fiskistofa því til allra veiðifélaga að gera stofnuninni viðvart ef eldislaxar veiðast á vatnasvæði félagsins og senda meinta eldislaxa til Hafrannsóknarstofnunar. Þá mælist Fiskistofa til þess að stangveiðitímabilið verði lengt til 15. nóvember í þeim tilgangi að leitað verði að eldislaxi og hann fjarlægður.

Fiskistofa heimilar jafnframt veiðifélögum að loka laxastigum þar sem vart hefur orðið við eldislax en með skilyrðum s.s. að gæta þarf að því að uppganga villtra laxa og göngusilungs lokis ekki, að vitað sé um laxastiga a.m.k. daglega og villtum fiskum slepp upp fyrir, og að meintum eldislöxum verði skilað til Hafrannsóknarstofnunar.

Fram kemur í bréfi Fiskistofu að stofnunin hafi dagana 7.-10. september framkvæmt eftirlit með drónum yfir veiðiám víða á Vestfjörðum, í öllum ám í Arnarfirði og við Húnaflóa. Ekki hafi mikið magn af fiski sést og því sé ekki tilefni til aðgerða.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga