Á Kjalvegi við Blöndulón. Ljósm: Hallbjörn Hallbjörnsson
Á Kjalvegi við Blöndulón. Ljósm: Hallbjörn Hallbjörnsson
Fréttir | 15. september 2023 - kl. 09:53
Þingsályktunartillaga um endurnýjun Kjalvegar með einkaframkvæmd lögð fram enn á ný

Lögð hefur verið fram á Alþingi að nýju tillaga til þingsályktunar um endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd. Ályktunin felur í sér að Alþingi feli innviðaráðherra að hefja undirbúning að endurnýjun vegarins yfir Kjöl og gera hann að vegi sem hægt er að halda opnum stóran hluta ársins með einkaframkvæmd.

Ráðherra skal svo hlutist í þessu skyni til um að gerð verði forkönnun á umhverfisáhrifum ásamt samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum framkvæmdarinnar, m.a. á ferðaþjónustu, byggðaþróun og náttúruvernd. Stefnt verði að því að undirbúningi framkvæmda ljúki fyrir árslok 2024 og framkvæmdir hefjist í beinu framhaldi.

Flutningsmenn tillögunnar eru sjö þingmenn Sjálfstæðisflokksins þau Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Árnason, Birgir Þórarinsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir og Jón Gunnarsson.

Tillaga sama efnis var lögð fram á 141. löggjafarþingi, eða í október 2012, á 148. löggjafarþingi, eða í mars 2018 og á 151. löggjafarþingi, eða í apríl 2021 og hefur aldrei hlotið brautargengi.

Tengdar fréttir:
Vilja endurnýja veginn yfir Kjöl með einkaframkvæmd 

Vilja heilsársveg yfir Kjöl með einkaframkvæmd
Vilja kanna hagkvæmni heilsársvegar um Kjöl

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga