September 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 16:00 | N 5 | 3°C |
Laxárdalsh. | 16:00 | NNA 7 | 4°C |
Vatnsskarð | 16:00 | ANA 5 | 2°C |
Þverárfjall | 16:00 | NNA 4 | 2°C |
Kjalarnes | 16:00 | 98.0 9 | 8°C |
Hafnarfjall | 16:00 | N 4 | 7°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í nýbirtum fjárlögum 2024 er gert ráð fyrir auknu fjármagni, upp á 110 milljónir króna, til innleiðingar verndandi arfgerða gegn riðuveiki. Gert er ráð fyrir að aukningin mæti kostnaði við arfgerðagreiningu til að innleiða megi sem hraðast verndandi arfgerðir í íslenska sauðfjárstofninn. Þetta er í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 28. apríl síðastliðnum, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að í greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands komi fram að hægt sé að innleiða verndandi arfgerðir gagnvart riðusmiti á takmörkuðum svæðum. Þannig verði yfir 80% fjár á mestu áhættusvæðunum arfblendið eða arfhreint innan fimm ára og þar af leiðandi ólíklegt til að veikjast af riðu.
„Matvælastofnun hefur haft samráð við viðeigandi aðila, m.a. fagráð í sauðfjárrækt og deild sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands til að hraða innleiðingu verndandi arfgerða. Sérstakur sérfræðingahópur um riðuveiki var einnig skipaður Matvælastofnun til ráðgjafar, en gott samstarf bænda og stjórnvalda er forsenda árangurs í þessum málaflokki. Yfirdýralæknir leiðir þessa vinnu af hálfu stjórnvalda, sem sá aðili sem ber ábyrgð á dýraheilbrigði,“ að því er segir á vef Stjórnarráðsins.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |