Fréttir | 18. september 2023 - kl. 22:10
Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.-30. september í yfir 30 Evrópulöndum. Markmiðið með vikunni er að kynna íþróttir og aðra hreyfingu og koma með því í veg fyrir hreyfingarleysi á meðal almennings. Á Skagaströnd hefur Ungmennafélagið Fram sett saman glæsilega dagskrá fyrir vikuna í samstarfi við sveitarfélagið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem veitti 500.000 króna styrk vegna verkefnisins.
Í boði verða alls konar viðburðir fyrir alla aldurshópa svo sem danstími, led badminton, pickle ball og fræðandi fyrirlestrar. Allir viðburðirnir verða gjaldfrjálsir og vonast ungmennafélagið til að sjá sem allra flesta.
Bæklingur með frekari upplýsingum verður borinn í hús á næstunni og við munum viðburðir einnig verða auglýstir á facebooksíðu Fram.