Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 22. september 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
September 2023
SMÞMFL
272829303112
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:50 N 6 3°C
Laxárdalsh. 13:50 ANA 5 4°C
Vatnsskarð 13:50 ANA 3 2°C
Þverárfjall 13:50 NNA 4 2°C
Kjalarnes 13:50 102.0 7 8°C
Hafnarfjall 13:50 N 4 7°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
19. september 2023
Eftir Svölu Runólfsdóttur, Elínu S. Sigurðardóttur og Dagnýju Sigmarsdóttur
13. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
12. september 2023
57. þáttur. Eftir Jón Torfason
10. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
09. september 2023
Eftir Sigurjón Þórðarson, varaþingmanns Flokks fólksins í NV-kjördæmi
04. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. ágúst 2023
Fréttir | 19. september 2023 - kl. 14:15
Vilja Alexandersflugvöll sem varaflugvöll

Bjarni Jónsson og Bergþór Ólason, báðir þingmenn Norðvesturkjördæmis, hafa lagt fram á Alþingi í fimmta sinn tillögu til þingsályktunar um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Vilja þeir að innviðaráðherra geri ítarlega athugun á kostum þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli og að niðurstöður verði kynntar á Alþingi eigi síðar en 30. apríl 2024. Þingsályktunartillaga sama efnis var lögð fram á 144., 150., 151. og 152. löggjafarþingi.

Í greinargerð með tillögunni segir að kostir Alexandersflugvallar séu ótvíræðir, m.a. góð landfræðileg lega Alexandersflugvallar sem sé mjög heppileg með tilliti til jarðhræringa og/eða eldgosa sem hamlað geti flugsamgöngum. Þá séu samgöngur á landi traustari yfir vetrartímann á milli Sauðárkróks og Reykjavíkur en á milli Akureyrar og Reykjavíkur, eins og komið hafi í ljós þegar landleiðin að Keflavíkurflugvelli lokaðist vegna ófærðar síðastliðinn vetur og truflun varð einnig á samgöngum við Akureyri, ekki einungis um Akureyrarflugvöll heldur einnig landleiðina.

Tillöguna má sjá hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið