Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 00:20 | N 5 | -8°C |
Laxárdalsh. | 00:20 | A 5 | -7°C |
Vatnsskarð | 00:20 | ASA 2 | -5°C |
Þverárfjall | 00:20 | NA 6 | -4°C |
Kjalarnes | 00:37 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:20 | NNA 2 | -4°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Fimm þingmenn Framsóknarflokksins og þrír þingmenn Flokks fólksins hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva RARIK ohf. á landsbyggðina. Vilja þau að Alþingi feli fjármála- og efnahagsráðherra að stefna að flutningi höfuðstöðvanna og að hann kanni á grundvelli hagsmuna félagsins hvar væri hentugast að byggja upp höfuðstöðvarnar og efla starfsstöðvar RARIK um landið. Þingsályktunartillagan hefur tvisvar áður verið lögð frá, á 151. löggjafarþingi og því 153.
RARIK er opinbert hlutafélag sem stofnað var 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins. Meginhlutverk fyrirtækisins er að afla raforku og dreifa henni með hagkvæmum hætti til almennings og atvinnulífs. Um 90% af dreifikerfi raforku í landinu eru í umsjón félagsins, m.a. í flestum sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins, Reykjanesskaga og Vestfjarða. Starfsemi fyrirtækisins er dreifð um landið allt, m.a. í Stykkishólmi, Ólafsvík, Búðardal, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri, Kópaskeri, Þórshöfn, Vopnafirði, Nesskaupstað, Fáskrúðsfirði, Höfn, Selfossi og Hvolsvelli.
Í greinargerð með þingsályktunartillögunni segir að fólksfækkun á landsbyggðinni vegna flutninga til höfuðborgarsvæðisins hafi lengi verið meginvandamál samfélaga á landsbyggðinni. Meðal helstu ástæðna sé skortur á störfum og lítil fjölbreytni starfa.
Þá segir í greinargerðinni: „Atvinnuöryggi og fjölbreytni starfa tryggir stöðugleika í íbúafjölda, laðar frekar til sín nýja íbúa og stuðlar að því að ungt fólk snúi heim aftur eftir nám. Skortur á fjölbreytni skekkir hlutfall þeirra aldurshópa sem eru almennt virkastir á vinnumarkaðinum. Þetta leiðir til fækkunar íbúa sem hefur í för með sér skerðingu á útsvarstekjum sveitarfélaga. Mikilvægt er að tryggja jöfn búsetuskilyrði um land allt. Með því að dreifa ríkisstörfum jafnt um landið er hægt að tryggja öllum landsmönnum jöfn tækifæri ásamt því að halda landinu öllu í blómlegri byggð. Það er þó aðeins gert við rétt skilyrði, sem flutningsmenn telja vera fyrir hendi í tilviki flutnings Rariks ohf. á landsbyggðina.“

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |