Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 3. desember 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Desember 2023
SMÞMFL
262728293012
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:20 N 4 -8°C
Laxárdalsh. 01:20 A 4 -7°C
Vatnsskarð 01:20 NA 3 -5°C
Þverárfjall 01:20 NA 6 -4°C
Kjalarnes 01:31 0 0°C
Hafnarfjall 01:20 VSV 2 -4°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
21. nóvember 2023
62. þáttur. Eftir Jón Torfason
18. nóvember 2023
Ingi Heiðmar Jónsson
11. nóvember 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
08. nóvember 2023
Eftir Bjarna Jónsson
06. nóvember 2023
61. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. nóvember 2023
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 21. september 2023 - kl. 13:09
Nóg um að vera hjá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra

Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra gefur reglulega út fréttabréf þar sem fjallað er um það helsta sem er á döfinni hjá félaginu. Eitt slíkt er nýútkomið og þar er m.a. sagt frá því að kóræfingar hjá Kór eldir borgara hefjast 29. september. Æft er klukkan 14 til 15:30 í salnum í Nestúni á föstudögum. Stjórnandi og meðleikari eru sem fyrr Ólafur E Rúnarsson og Elínborg Sigurgeirsdóttir. Nýir félagar eru hvattir til að mæta á æfingar.

Fyrirhugað er fjölbreytt námskeiðahald á haustmisseri og hefjast fyrstu námskeiðin í október. Stefnt er að kom á koppinn námskeiðum í málun með vatnslitum, tálgun, trérennismíði, hnýtingum, línudansi og útskurði. Þann 21. október verður Vesturlandsmóti í Boccia haldið á Hvammstanga og er reiknað með að allt að 50 gestir mæti til félagsins í tilefni þess. Eldri borgarar eru hvattir til að mæta á æfingar og taka þátt.

Þá kemur fram í fréttabréfinu að áætlað er að halda haustfund Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra þann 25. október. Auk hefðbundinna haustfundarstarfa, svo sem skýrslu ferðanefndar og umræðna um starf félagsins, er fyrirhugað að ræða húsnæðismál eldri borgara í sveitarfélaginu á víðum grunni og bjóða gestum til að taka þátt í þeirri umræðu.

Í fréttabréfinu má svo sjá sameiginlega dagskrá um viðburði á vegum Félags eldri borgara og Húnaþings vestra í september til desember 2023.

Fréttabréfið má lesa hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið