Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 00:00 | NNV 4 | -8°C |
Laxárdalsh. | 00:00 | A 5 | -7°C |
Vatnsskarð | 00:00 | A 2 | -5°C |
Þverárfjall | 00:00 | NA 6 | -4°C |
Kjalarnes | 00:20 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:00 | NNA 2 | -5°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Stjórnvöld, sambandsaðilar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélag Íslands stefna á að setja á laggirnar átta starfsstöðvar á landsvísu sem munu þjónusta öll 25 íþróttahéruð landsins. Horft verður til samlegðaráhrifa við svæðisskipt verkefni ríkis og sveitarfélaga eins og skólaþjónustu, farsæld barna og æskulýðsstarfs. Markmiðið er að efla íþróttahéruðin og nær breytingin til tæplega 500 íþrótta- og ungmennafélaga um land allt.
Sagt er frá þessu á vef Stjórnarráðsins. Þar kemur fram að horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og starfsstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni. Það mun styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og þannig jafna tækifæri barna óháð aðstæðum og búsetu sem og að efla þjónustu á viðkomandi svæði.
„Með stofnun starfsstöðva um allt land til að styðja við starfsemi íþróttahéraða og félaga er stigið risastórt skref til að efla íþróttastarf í landinu. Með þessum breytingum mun íþróttahreyfingin vera í mun betri færum til að sinna sínum mikilvægu verkefnum sem sífellt fjölgar og verða viðameiri,” segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ.
Mennta- og barnamálaráðherra hefur lýst yfir vilja til þess að styðja við verkefnið með 200 milljón króna árlegu framlagi til ÍSÍ og UMFÍ til næstu tveggja ára, til að byrja með. Framlaginu er ætlað að styðja við þessa uppbyggingu um allt land og meðal annars koma á fót hvatasjóði. Hlutverk hvatasjóðsins verður að stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþróttum, með áherslu á börn með fötlun og börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Sjá nánari umfjöllun á vef Stjórnarráðsins.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |