Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 01:40 | N 5 | -8°C |
Laxárdalsh. | 01:40 | A 5 | -6°C |
Vatnsskarð | 01:40 | NNA 3 | -5°C |
Þverárfjall | 01:40 | NA 8 | -4°C |
Kjalarnes | 01:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:40 | V 1 | -4°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnaþings vestra gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma sveitarfélagsins árið 2024 verði jákvæð um 2,7 milljónir króna. Ef það gengur eftir er um verulegan viðsnúning að ræða í rekstri þar sem áætlað er að afkoma þessa árs verði neikvæð um 82,7 milljónir og afkoma síðasta árs var neikvæð um 85,9 milljónir. Síðari umræða um fjárhagsáætlun ársins 2024, ásamt þriggja ára áætlun, fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra fór fram á sveitarstjórnarfundi 9. nóvember síðastliðinn.
Í greinargerð með fjárhagsáætluninni, sem lesa má í fundargerðinni, kemur fram að fjárfestingar árið 2024 eru áætlaðar 35,5 milljónir og lántaka er áætluð 100 milljónir. Afborganir langtímalána á næsta ári eru áætlaðar 109,8 milljónir. Skuldahlutfall 2024 er áætlað 68,7% og verður rétt rúmlega 70% árin 2025-2027. Fjármagnskostnaður 2024 er áætlaður 79,9 milljónir og handbært fé 193 milljónir. Veltufé frá rekstri er áætlað 136 milljónir á næsta ári og veltufjárhlutfall er áætlað 1,31.
Útsvarsprósentan óbreytt
Útsvarsprósenta ársins 2024 verður óbreytt eða 14,74%, sem er hæsta leyfilega útsvar. Samkvæmt áætluninni munu útsvarstekjur hækka um 8,66% frá árinu 2023, en 0,25% útsvarshlutans renna til málefna fatlaðs fólks. Fram kemur í greinargerðinni að útsvarstekjur pr. íbúa í Húnaþingi vestra er mjög lágar. Þegar útsvar fyrstu tíu mánuði ársins 2023 er reiknað út pr. íbúa eru útsvarstekjur kr. 496.964. Á sama tíma eru útsvarstekjur pr. íbúa hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd kr. 593.718, hjá Sveitarfélaginu Skagafirði kr. 572.294 og Húnabyggð kr. 531.200.
Fasteignagjöld hækka
Samkvæmt áætluninni er álagning fasteignagjalda hækkuð úr 0,4% árið 2023 í 0,475% árið 2024, en hæst má álagningin vera 0,65% með fullnýtingu álagsheimildar. „Með þessu færist gjaldskráin nær gjaldskrá fasteignagjalda í sveitarfélögunum í kringum okkur,“ segir í greinargerðinni. Samhliða þessu eru tekjuviðmið reglna um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega hækkuð. Áætlaðar tekjur vegna fasteignagjalda hækka um 25,21% á milli ára. Sveitarstjórn Húnaþings vestra ákvað að gjaldskrárhækkanir yrðu almennt að öðru leyti hóflegar fyrir árið 2024, eða um 5,5%.
„Þrátt fyrir þrönga stöðu á komandi ári líta árin þar á eftir mun betur út. Þriggja ára áætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja sýnir að með lækkandi verðbólgu og áhrifum þess á fjármagnskostnað muni strax á árinu 2025 gefast rými til framkvæmda að nýju. Miðað við framlagða áætlun uppfyllir sveitarsjóður öll viðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Eins og fram hefur komið var við vinnu við gerð áætlunarinnar allt kapp lagt á að verja bæði störf og þjónustustig. Stór ástæða þess að það tókst er ábyrgur rekstur undanfarinna ára og ekki síst góð samvinna við forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins,“ segir í greinargerð sveitarstjórnar.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |