Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 01:00 | N 5 | -8°C |
Laxárdalsh. | 01:00 | A 5 | -6°C |
Vatnsskarð | 01:00 | A 1 | -6°C |
Þverárfjall | 01:00 | NA 6 | -4°C |
Kjalarnes | 01:15 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:00 | VSV 2 | -4°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Árleg uppskeruhátíð búgreinafélaga í Austur-Húnavatnssýslu var haldin þann 11. nóvember í Félagsheimlinu á Blönduósi. Eins og tíðkast hefur veitti FSAH verðlaun fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt.
Hæst stigaðisti hyrndi lambhrútur 2023
1. Nr 2051 frá Hólabæ með 89,5 stig – F: Austri 20-892 M: Golsa 20-205 (MF: Spakur 14-801)
Mál og stigun: 58 kg – 110 mm – 39/5/5 – 8 – 9 – 9,5 – 9,5 – 9,5 – 18,5 – 8,5 – 8 – 9 = 89,5 stig
2. Nr 190 frá Leifsstöðum með 89,5 stig – F: Grettir 20-877
3. Nr 94 frá Sölvabakka með 89 stig – F: Jaður 20-891
Þegar hrútar standa jafnir að stigum er reglan sú að raða þeim eftir stigum fyrir skrokkgæði, ef þeir standa enn jafnir þar er farið í bakvöðvaþykktina, sem þurfti að gera í þessu tilfelli. Nr 2051 frá Hólabæ hlaut einnig farandgrip sem efsti hrútur sýslunnar þetta haustið auk þess ber hann T137 gen sem gerir hann afar verðmætan til framræktunar.
Hæst stigaðisti kollótti lambhrútur 2023
1. Nr 20 frá Hofi með 89,5 stig – F: Gullmoli 22-902 M: Aþena 14-440 (MFF: Grábotni 06-833)
Mál og stigun: 66 kg – 110 mm – 38/3,5/4,5 – 7,5 – 9,5 – 9,5 – 9,5 – 9 – 18,5 – 9 – 8 – 9 = 89,5 stig.
2. Nr 701 frá Stekkjardal með 89,5 stig – F: Kalli 20-893
3. Nr 152 frá Hjallalandi með 89 stig – F: Dagur 21-700
Sigurvegarinn í þessum flokki, nr 20 frá Hofi, ber ARR gen og hefur verið fenginn á sæðingastöð og munu bændur um allt land geta notað hann til kynbóta á komandi fengitíð.
Þykkasti bakvöðvi í gimbrahóp (fleiri en 50) 2023
1. Stekkjardalur – 97 gimbrar – 33,4 mm
2. Sölvabakki – 125 gimbrar – 32,9 mm
3. Fagranes – 103 gimbrar – 32,7 mm
Afurðarmesta sauðfjárbúið 2022
1. Steinnes 37,5 kg eftir ána
2. Sveinsstaðir 35,3 kg eftir ána
3. Stekkjardalur 35,2 kg eftir ána
Besta 5 vetra ærin
1. Nr 17-367 frá Örlygsstöðum með 120 stig fyrir fallþunga mæðraáhrif
2. Nr 17-754 frá Breiðavaði með 116 stig fyrir fallþunga mæðraáhrif
3. Nr 17-743 Snerpa frá Barkarstöðum með 114 stig fyrir fallþunga mæðraáhrif
Miðað er við 5 vetra ær sem voru lifandi við haustuppgjör 2022 og þeim raðað upp eftir einkunn fyrir fallþunga mæðraáhrif sem er nýr eiginleiki í kynbótamatinu. Einnig þarf ærin að standast eftirfarandi skilyrði:
- Hún verður að hafa skilað lambi sem gemlingur
- Hún verður að hafa verið að lágmarki tvílembd öll sín ár
- Meðal afurðastig 7,0 eða hærra
- Hún verður að hafa skilað til nytja allavega 8 lömbum.
Viðurkenning
Ásamt því að veita verðlaun fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt hefur félagið veitt viðurkenningu fyrir það sem vel er gert í þágu sauðfjárbænda og var sú viðurkenning nú veitt í þriðja sinn. Áður hafa Karólína í Hvammshlíð (fyrir frumkvæði sitt að nýjum lausnum í baráttunni við riðu) og Valdimar Guðmannsson (fyrir framgöngu sína í Frjálsa kótilettufélaginu) hlotið þessa viðurkenningu en í ár var Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum heiðraður.
Frá árinu 1986 hefur Magnús flogið um afrétti og heiðarlönd bæði hér í sýslunni og víðar og þannig létt okkur bændum og smölum vinnu við smalamennskur á haustin. Þetta framlag Magnúsar er ómetanlegt með tilliti til tímasparnaðar og að finna gripi í víðfeðmum heiðarlöndum, sérstaklega í eftirleitum. Oftast hefur Magnús með sér farþega sem hjálpa honum að sjá og staðsetja kindur og síðan er skilaboðum komið til smala sem bíða átekta á jörðu niðri. Það er ekki sjálfgefið að hafa flugvél til taks við leit á sauðfé og hefur Magnús gert þetta í afar góðu samstarfi við bændur og á heiður skilinn fyrir og kunnum við honum bestu þakkir.

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |