Aðventuhátíð í Blönduóskirkju  •   Aðventuhátíð í Hólaneskirkju  •   Viðhaldsvinna mun valda rafmagnsleysi  •   Jólatónleikar Tónlistarskóla A.-Hún.  •   Börn í 1. bekk fengu endurskinsvesti  •   105 ára fullveldi fagnað  •   Nýtt Hvammshlíðardagatal komið út  •   Sagnaskemmtun um gömlu íslensku jólafólin á Heimilisiðnaðarsafninu  •  
Desember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 00:10 | N 5 | -8°C |
Laxárdalsh. | 00:10 | A 5 | -7°C |
Vatnsskarð | 00:10 | A 2 | -5°C |
Þverárfjall | 00:10 | NA 6 | -4°C |
Kjalarnes | 00:10 | 56.0 5 | -6°C |
Hafnarfjall | 00:10 | N 1 | -5°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
61. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. nóvember 2023
Pistlar | 21. nóvember 2023 - kl. 09:28
Sögukorn: Lengi bíði Pétur!
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
- Foreldrar Sigurðar dýralæknis Sigurðarsonar hófu búskap á Sigurðarstöðum í Bárðardal 1936:
Þau voru full af lífþrótti, samhent og listfeng. Faðir hans var áhugasamur um margt, sem var óvenjulegt til sveita á þeim árum. Hann smíðaði gróðurhús og ræktaði þar tómata, sem voru smáir eins og kirsuberjatómatar sem nú fást og þóttu mikið hnossgæti. Hann kom upp trjágróðri í hlíðinni fyrir ofan. Vatnsrör frá Sigurðarstaðatjörn ofan við heiðarbrúnina knúði rafstöð bæjanna Sigurðarstaða og Sunnuhvols. Á rörið boraði hann göt. Tappar voru í götunum. Með því að taka þá úr rörinu fengust vatnsstrókar, sem gáfu vökvun fyrir trjágróðurinn í hlíðinni.
- Um allan Bárðardal ríkti – eins og nú – samhygð, gestrisni, vinátta og hjálpsemi.
- Sigurður í sveinakrans
sannur ættarblómi.
Gæfa lífs á götu hans
glansi skært og ljómi.
Dável prýðir drengjasafn
dals á fögru vengi.
Sigurður er sómanafn
sem mun getið lengi. Baldvin Jónatansson skáldi 1860-1944) Ort um Sigurð eldri.
- Sigurður, faðir SigSig, dó aðeins 30 ára að aldri, þá hafði yngri Sigurður lifað 3 vikur. Banamein hans var sprunginn botnlangi og ólæknandi lífhimnubólga. Penicillin var þá ókomið til landsins. Móðir bræðranna flutti með þá Skúla Jón, eldri bróðurinn að Keldum á Rangárvöllum, þar bjuggu – í hálfa öld – foreldrar hennar, Skúli Guðmundsson frá Keldum f. 1862 og Svanborg Lýðsdóttir frá Hlíð í Gnúpverjahreppi f. 1863.
- Í gamla torfbænum á Keldum var dvölin ævintýri líkust. Þar bjuggu þau til ársloka 1946, síðustu ábúendur þar áður en Þjóðminjasafnið fékk bæinn til varðveislu og hálft ár 1947 bjuggu þau í húsi Lýðs móðurbróður SigSig, er reist var 1937 vestast í bæjarröðinni. Við þá byggingu var lögð að velli smíðastofa Skúla afa þeirra. Hann lést 1946.
- Þau fluttust ásamt Svanborgu ömmu þeirra 1947 að Selalæk á Rangárvöllum þar sem Sigurður afabróðir þeirra hafði áður búið og reist veglegt steinhús.
- Á Selalæk voru þau í rúm 2 ár en fluttust haustið 1949 að Hemlu í Landeyjum, er móðir bræðranna giftist Ágústi Andréssyni ekkjumanni þar. Í Hemlu átti Sigurður heima til 25 ára aldurs, lauk landsprófi frá Skógaskóla 1957, stúdent frá MA 1961 og tók próf í dýralækningum í Noregi 1967. Sigurður var svo heppinn að að fá vinnu að sumrinu á Tilraunastöð Háskólans að Keldum í Reykjavík frá 1963 meðan hann var við dýralæknisnámið.
- Sigurður bjó með Halldóru Einarsdóttir fyrri konu sinni frá 1968 í Grafarholti v/Vesturlandsveg en hún lést úr hjartabilun árið 2000. Seinni kona Sigurðar er Ólöf Erla Halldórsdóttir frá Búrfelli í Grímsnesi.
- Allur texti hér að ofan er úr nýrri bók Sigurðar með lögum hans, ljóðum, stökum og nokkrum æviatriðum og sagður með orðum hans.
- Þegar Jói í Stapa kom austur í Hreppa að byggja fjós í Skollagróf, eftir fárra ára dvöl í Reykjavík, hafði hann kynnst Sigurði, eignast ýmsa félaga í Kvæðamannafélaginu Iðunni og eftir tvö fyrstu hagyrðingamótin, þessi á Skagaströnd ´89 og Hveravöllum ´90, komu þessir félagar hans til liðs vestur í Sælingsdal 1991, Sigurður með Iðunnarfélögum úr Reykjavík en Sigvaldi Jónsson kom við annan mann austan frá Húsavík og bauðst til að halda næsta mót í Skúlagarði svo segja mátti að okkur félögum kæmu hvalrekar úr tveimur áttum.
- Nokkrar vísur úr Sigurðarbók:
Mýrarpyttir, móabörð
má þar Flóann kenna SS
Engan stað á allri jörð
eg veit betri en þenna. Valdimar Brynjólfsson
Ólafur Runólfsson fékk SigSig til að ganga í Iðunni, en Ormur formaður upplýsti að skylt væri að menn skiluðu stöku á fyrsta fundi sínum:
Ormur formaður Iðunnar
af mér heimtar stöku.
Eg skal reyna yrkingar
eftir þessa vöku.
Ekki er mér að yrkja tamt
æfingalaus til baga.
Hjá Iðunni teygja menn óðfák jafnt
í öllum háttum Braga. SS
- En hagyrðingamótin áttu eftir að endast nokkra hringi umhverfis Ísafoldu, allt til ársins 2012 þegar síðasta mótið var haldið á Húsavík. Þorfinnur Jónsson var heiðursgestur en Ósk Þorkelsdóttir undirbjó mótið ásamt Stefáni Vilhjálmssyni sem lengi lagði þessu fyrirtæki öflugt lið.
- En þáttur Sigurðar dýralæknis í góðu gengi mótanna er stór, hann var í forystu að undirbúa mótin í Reykjavík 1995 og 2000 og stóð fyrir rútuferðum á mótin, en samveran á leiðinni kveiktu gleði og vísnafjör sem entist alla mótshelgina og dugði venjulega alla leið heim aftur.
- Andrés Valberg kom í pontu á fundi Iðunnar og sagðist vera orðinn þunglyndur af fjármálaáhyggjum. Sigurður fór í pontu og spurði hvort Andrés vildi hann að reyndi lækningu. Hann kvað já við því. SigSig sagðist þá verða að gera það sem dýralæknir. Andrés samþykkti það og varð laus við þunglyndið eftir að hafa heyrt vísuna:
Andrés þjáir þunglyndi
það er ljóta sagan.
Ef karlinn væri kvikindi
kynni ég að lag´ann. SS
- Guðmundur Stefánsson í Hraungerði sendi Sigurði nokkrar vísur á sjötugsafmælinu og lýkur með þeim þessum sögukornum úr bókinni hans nýju:
1. Ótæmandi er nú hér
ausinn gleðibrunnur.
Því sjötugur nú sagður er
sómamaður kunnur.
2. Lætur ekki kvæðin kjur
kveðskap vill hann stýra.
Svona er hann Sigurður
sem er læknir dýra.
3. Hefur menn og konur kætt
köppum telst með snjöllum.
Kemur saman okkar ætt
austur á Rangárvöllum.
4. Lifi hann sæll í sátt við menn
sumur mörg og vetur.
Leiki við þá ljóðin enn
og lengi bíði Pétur. GS
Ingi Heiðmar Jónsson
Mest lesið

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |