Fréttir | 13. mars 2024 - kl. 15:29
Viltu taka þátt í að móta öruggara Norðurland vestra?

Öruggara Norðurland vestra er heiti á vinnustofu sem haldin verður í Félagsheimilinu á Blönduósi miðvikudaginn 20. mars næstkomandi klukkan 08:30-15:00. Um er að ræða svæðisbundið samráð gegn ofbeldi, öðrum afbrotum og til að stuðla að bættri þjónustu fyrir jaðarsetta hópa. Á vinnustofunni verða fjölmörg örerindi um málefni barna og ungmenna, jaðarsetta hópa, þjónustu við fólk með geðrænan vanda sem og ofbeldi í nánum samböndum.

Erindum er fylgt eftir með hópavinnu á borðum þar sem hver og einn kemur sínum sjónarmiðum á framfæri. Framkvæmdateymi um Öruggara Norðurland vestra vinnur svo áfram úr þeim tillögum sem fram koma og móta átaksverkefni í hverjum málaflokki til að vinna að.

Hægt er að skrá sig á vinnustofuna hér: https://forms.office.com/e/RDaDG5HnAc?origin=lprLink

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga