Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðahöld á sumardaginn fyrsta á Hvammstanga

Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.

Gengið verður niður að Félagsheimili með viðkomu á Sjúkrahúsinu. Að lokinni skrúðgöngu verður boðið til hátíðar í Félagsheimilinu Hvammstanga. Þar afhendir m.a. Vetur konungur Sumardísinni veldissprota sinn. Börn úr fyrsta og öðrum bekk grunnskólans skemmta með söng. Öllum er síðan boðið í sumarkaffi. Á eftir verða spilaðar nokkrar umferðir í bingó þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.

Öll dagskráin er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga