Frá undirbúningi afmælisins. Ljósm: Jón Sig.
Frá undirbúningi afmælisins. Ljósm: Jón Sig.
Allar að vanda sig. Ljósm: Jón Sig.
Allar að vanda sig. Ljósm: Jón Sig.
Fréttir | 16. maí 2008 - kl. 16:17
Kvenfélagið Vaka 80 ára

Kvenfélagið Vaka heldur upp á 80 ára afmæli sitt sunnudaginn 18. maí n.k. í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefjast herlegheitin kl. 11:00 og standa til kl. 15:00. Boðið verður upp á súkkulaði, kaffi og meðlæti. Einnig verður létt dagskrá í tali og tónum í boði heimafólks.

 

Kvenfélagið Vaka var stofnað þann 8. janúar 1928 og voru stofnendur 12 talsins. Í fyrstu stjórn félagsins sátu þær Jóhanna Hemmert, formaður, Guðrún Jónsdóttir, gjaldkeri og Láretta Stefánsdóttir, ritari. Allt frá stofnun félagsins hefur það jafnan reynt að fylgja 1. lagagrein félagsins í því að vinna að líknar- og menningarmálum.

 

Á fyrstu starfsárunum, kreppuárunum, voru ýmsir hjálpaþurfi og reyndi félagið að bæta hag þeirra eftir mætti. Þá var einnig reynt að styðja þá, sem urðu yfir sérstökum áföllum. Þá gerðist félagið einnig þátttakandi í framkvæmdum í byggðarlaginu, s.s. byggingu Héraðshælisins og síðar Félagsheimilisins. Snemma var hugað að fegrun og ræktun í þorpinu og hvamminum þar sem vinnu við ræktun var fyrst getið í gerðabókum 1936. Hvammurinn fékk snemma nafnið Kvenfélagsgarðurinn en á seinni árum var honum gefið nafnið Fagrihvammur. Það var von kvenfélagskvenna að hreppsbúar létu sér annt um garðinn og nytu þess næðis og gróðursældar sem þar var.

 

Að öðru starfi kvenfélagsin ólöstuðum þá stendur árlegt þorrablót þeirra upp úr hjá flestum bæjarbúum. Þorrablótið hefur verið ávisst á fjórða áratug og ætíð vel sótt. Það er því vel við hæfi að óska kvenfélaginu til hamingju með áratugina átta og hvetja um leið alla Blönduósinga og nærsveitamenn að fjölmenna í Félagsheimilið á Blönduósi á sunnudaginn og þiggja kaffi og meðlæti. Vökukonur hafa komið því á framfæri að allar gjafir og blóm séu afþökkuð en ef einhver vill gleðja félagskonur, þá er tilvalið að leggja andvirði þeirrar gjafar inn á Orgelsjóð Vöku í Kaupþingi banka á Blönduósi. Númerið er 0307-13-300239 og kennitalan 670269-7529. Heimild: Húnavaka 1978

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga