Tilkynningar | 30. apríl 2010 - kl. 14:01
Reiðhjólaklúbburinn "Bein leið" fer sína fyrstu ferð á sunnudaginn

Nokkrir ungir og frískir piltar hafa stofnað "Reiðhjólaklúbburinn BEIN LEIÐ"  og er félagaskrá komin yfir 70 manns nú þegar.

 

Verið er að undirbúa skipulagðar hjólaferðir í nágrenni Blönduóss og er stefnan sett á reglulegar ferðir af mörgum toga og ber helst að nefna styttri innanbæjarferðir,lengri utanbæjarferðir og sk. Offroad ferðir þar sem ferðast verður eftir fjallaslóðum og rollustígum á hálendinu og víðar.

 

Fyrsta ferð sumarsins er áætluð 2. maí nk. og er mæting við bílastæði grunnskólans eigi síðar en kl. 10:55 og verður lagt af stað kl. 11:00. Boðið verður uppá tvær leiðir að þessu sinni.

 

Annars vegar sk.Bryggjubrekkuhringur! Farið verður frá skólanum eftir Húnabraut og niður á bryggju, snúið þar við og farið að mjólkurstöðinni, þaðan niður að dæluhúsi og með bökkum Blöndu eftir Bakkastíg. Því næst verður farið meðfram þjóðvegi 1 yfir Blöndu og uppá Brekku, tekinn hinn klassíski brekkuhringur og þaðan niður í Gamla bæinn. Hjólað framhjá Ljóni Norðursins og haldið yfir Blöndu tilbaka og inn á bílastæði skólans þar sem ferðinni lýkur. Lengd leiðar er um 6,5 kílómetrar og er ferðin hentug fyrir fjölskyldur, börn og unglinga á öllum aldri.

 

Hins vegar verður farin sk.Neðribyggðarleið! Að sama skapi verður lagt af stað frá bílastæðinu við grunnskólann og haldið upp Kaupfélagsbrekkuna, framhjá kirkjunni og útá þjóðveg 1. Eftir honum verður svo farið framhjá N1, Vörumiðlun, Særúnarhúsinu og uppúr bænum að gatnamótum Blö-Ska. Eftir þjóðvegi 74 eða Skagastrandarvegi verður farið í gegnum Vatnahverfisþjóðgarðinn og framhjá Síðu og Kúfskerpi. Svo verður tekin vinstri beygja og haldið eftir Neðribyggðarvegi framhjá Sölvabakka, Svansgrund, Bakkakoti og Blöndubakka niður Klaufina og að lokum eftir Húnabraut að bílastæði skólans þar sem ferðinni er lokið. Lengd leiðar er um 16,5 kílómetrar og er ætluð vanari hjólreiðarmönnum eða öllu heldur öllum sem treysta sér til að fara þessa leið!

 

Athygli er vakin á að ef félagar treysta sér ekki einhverra hluta vegna til að klára leiðir,er þeim í sjálfsvald sett hvort þeir taki styttri útfærslur á leiðunum eða snúi við eftir þeirra hentugleik því allt er þetta til gamans gert.

 

Reiðhjólaklúbburinn Bein leið rukkar ekki inn félagsgjöld og eru allir velkomnir í klúbbinn. Stjórn klúbbsins hefur nú þegar skráð yfir 70 félaga og er enn að bætast við. Áhugasamir geta sent inn umsókn á netfang klúbbsins beinleid@gmail.com.  

 

Ein regla er höfð að leiðarljósi hjá félaginu og er það að klúbbfélagar skuldbinda sig til að nota hjálm við reiðhjólaiðkun sína. Alltaf:)

 

Unnið er að gerð netfangalista fyrir félagsmenn auk þess sem stjórnin hefur fengið loforð fyrir góðum afsláttarkjörum i helstu reiðhjólaverslunum landsins fyrir félagsmenn. Skorum á sem flesta að mæta,skráning í klúbbinn verður á staðnum.

 

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga