Fréttir | 02. júní 2010 - kl. 23:14
Sjómannadagurinn verður haldinn hátÃðlegur að vanda laugardaginn 5. júnà og verður með nokkuð hefðbundnu sniði. Skrúðganga leggur af stað frá höfninni kl. 10:30 og er gengið til kirkju og þar hefst sjómannamessa kl. 11:00. Kór sjómanna sér um allan söng við athöfnina og herma fréttir að þetta verði allt saman með léttu yfirbragði à tilefni dagsins.
Skemmtisigling verður auðvitað á sÃnum stað og hefst hún kl 13:15. Allir eru hvattir til að mæta og fá sér hressandi siglingu með einum af þeim fjölmörgu bátum sem à boði verða.
Að skemmtisiglingu lokinni hefst dagskrá hátÃðarhaldanna með fallbyssuskoti lÃkt og gert var á sÃðasta sjómannadegi. Að þvà búnu er kappróður og þvà næst leikir á plani.
Verður margt à boði og má þar nefna kappleiki, þrautir og dans ásamt þvà að heiðraðir verða tveir sjómenn.
Sjoppan á planinu verður að sjálfsögðu á sÃnum stað fyrir þá sem ekki geta beðið eftir að kaffisalan opni kl. 15:30 à félagsheimilinu Fellsborg. Kaffið kostar 1000 kr. fyrir fullorðin en 800 fyrir börn og eldriborgara.
Ungur listamaður að nafni Þórður Indriði Björnsson verður með sýningu á myndum unnum à Photoshop á meðan á kaffisölu stendur.
RúsÃnan à pylsuendanum er svo auðvitað stórdansleikur um kvöldið à Fellsborg með Matta og Draugabönunum. Þar verður án efa dúndrandi stuð fram eftir nóttu.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. og aldurstakmark 16 ár.
Björgunarsveitin Strönd óskar sjómönnum til hamingju með daginn og vonar að allir skemmti sér sem best á þessum hátÃðisdegi. Heimild: Skagastrond.is