Mynd: Hunar.123.is
Mynd: Hunar.123.is
Fréttir | 14. júní 2010 - kl. 18:23
Bíll festist við Hólmavatn á Arnarvatnsheiði

Óskað var eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Húna í Húnaþingi vestra í gærkvöld vegna bíls sem farið hafði út af við Hólmavatn á Arnarvatnsheiði og sat þar kolfastur. Þegar komið var á staðinn kom líka í ljós að kúplingin var farin í bílnum eftir að reynt hafði verið að losa hann. Vel gekk að losa bílinn og var hann keyrður á Hvammstanga fyrir fólkið en um bílaleigubíl var að ræða. Frá þessu er greint á heimasíðu björgunarsveitarinnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga