Tilkynningar | 15. febrúar 2012 - kl. 07:44
Nýr bæjar- og menningarvefur fyrir Skagafjörð

Nýr bæjar- og menningarvefur fyrir Skagafjörð hefur verið opnaður. Slóð hans er www.saudarkrokur.is og er hann ætlaður fyrir ferðamenn og íbúa svæðisins. Forsvarsmaður vefsins er Magnús Magnússon.

Vefurinn á að vera fyrir alla sem hafa áhuga á að fræðast nánar um Skagafjörð og komast í helstu fréttir og menningarviðburði á svæðinu. Hann mun innihalda stuttar fréttir úr Skagafirði og upplýsingar fyrir ferðamenn og íbúa á svæðinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga