Dansgólfið var troðið
Það var nánast slegist um treyjurnar hér lengst til hægri
Hetjan sjálf Guðjón li
Hljómsveitin Börn og Gamalmenni
Gestir ná sér í bakkelsi
Ekki var það síðra á þessum enda
Helga Dögg og félagar. Hér vantar inn á myndina Benedikt
Gísli Einarsson stjórnað treyjuuppboðinu af snilld
Þórdís Erla, Jón Örn, Björn Ívar, Stefán Freyr og Guðjón li í lok skemmtunarinnar
Fréttir | 10. nóvember 2012 - kl. 21:16
Mögnuð stemning var í Félagsheimilinu á Blönduósi í dag en þá var haldin fjölskylduskemmtun til stuðnings Guðjóns Óla Jónssonar og fjölskyldu hans en hann veiktist alvarlega fyrr á þessu ári aðeins nokkurra vikna gamall. Rúmlega 500 manns mættu í félagsheimilið og troðfylltu danssalinn og urðu margir að standa þar sem ekki voru sæti fyrir alla í salnum.
Gísli Einarsson, Landamaður með meiru, stjórnaði skemmtuninni en mörg tónlistaratriði voru flutt auk þess sem Gísli stjórnaði treyjuuppboði sem tókst með ólíkindum vel og safnaði veruleg upphæð á uppboðinu. Þá var boðið upp á rosalegt kökuhlaðborð þannig að enginn fór svangur heim af góðri skemmtun.
Meðfylgjandi myndir sína stemninguna sem skapaðist á skemmtuninni í dag.