Júní 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 |
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 01:20 | SSV 8 | 6°C |
Laxárdalsh. | 01:20 | VSV 6 | 7°C |
Vatnsskarð | 01:20 | S 6 | 8°C |
Þverárfjall | 01:20 | VSV 9 | 9°C |
Kjalarnes | 01:20 | ANA 0 | 9°C |
Hafnarfjall | 01:20 | SSV 5 | 9°C |


30. október 2022 Stutt hugleiðing um íslenskunaSumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana. ::Lesa |
Menning
og meira
Ég tel mig vera þokkalega duglega að mæta á menningarviðburði á svæðinu og oft verð ég hissa á hvað margt er í boði. Tónleikar, alls kyns sýningar, upplestrar og fyrirlestrar er eitthvað sem mér finnst almennt óskaplega skemmtilegt að mæta á og missi helst ekki af ef ég mögulega get. Auðvitað eru fjölmargar uppákomur sem fara framhjá mér, en þannig er það nú bara. Ég get víst ekki verið alls staðar, þó svo ég glöð vildi.
Ég er óendanlega þakklát því fólki sem stendur fyrir
þessum fjölbreyttu uppákomum. Mjög oft er þetta eitthvað sem fólk stendur í
utan hefðbundins vinnutíma og fær lítil sem engin laun fyrir, en gerir samt og
oftast með glöðu geði, tel ég. Svæðið okkar væri fátækara ef þessu fólki nyti
ekki við.
Mjög oft á þetta við um tónlistarfólkið okkar. Margir
sem tilheyra þessum hæfileikaríka flokki eru ótrúlega duglegir að æfa fyrir
hina ýmsu viðburði og auðvitað fara þær æfingar fram á kvöldin og um helgar.
Það er ekki sjálfgefið að fólk geri þetta og við verðum að muna að þakka þeim
fyrir, til dæmis með því að mæta á þessa viðburði... Við eigum fjölbreyttan hóp
hæfra tónlistarmanna og söngvara á öllum aldri, sem virkilega gaman er að
fylgjast með og hlusta á.
Ekki má gleyma að minnast á alla þá sem starfa fyrir
hins ýmsu félög og samtök sem hér eru. Hvernig væri til dæmis Vöku-þorrablótið
ef konur í kvenfélaginu stæðu ekki á haus við undirbúning í marga, marga, marga
daga? Hvernig gengi öllu íþróttafólkinu okkar; hestafólki, golfurum,
knattspyrnufólki, frjálsíþróttafólki, sundgörpum og þeim sem stunda júdó, ef
ekki væri fyrir þá sem eru til í að gefa tíma sinn til skipulagningar,
fjáröflunar, undirbúnings og alls þess sem þarf til að hægt sé að halda úti
þessu frábæra starfi? Ég held að heldur dauflegt væri um að lítast á því
sviðinu.
Auðvitað
verður að benda á að ef ekki væri fyrir okkur sem stundum allt það sem í boði
er, þá væri erfitt að halda áfram að bjóða uppá þá fjölbreyttu afþreyingu sem
við höfum, þrátt fyrir fámennið. Ef við skoðum til dæmis þá hreyfingu sem hægt
er að stunda – fyrir utan hressilega útiveru í okkar dásamlega hreina lofti –
þá er hægt að fara í sund og þreksalinn á eigin vegum, fara í jóga, kvennaleikfimi,
badminton, Metabolictíma, Zumba-dans, sundleikfimi, einkaþjálfun og vafalaust
eitthvað fleira sem ekki kemur upp í hugann einmitt núna. Svo er hægt að syngja
í kórum, sauma í refilinn góða og ganga í björgunarsveitina.
Mikið sem ég sakna þess að telja ekki upp leikfélagið í
þessari upptalningu en það síðasta sem ég frétti af starfsemi þar var að margir
vildu leika (sem er auðvitað alveg frábært) en enginn fengist í öll hin störfin
sem þarf að vinna til að hægt sé að setja upp leikrit. Vonandi rætist úr svo
við fáum fljótlega að njóta hæfileika þessa flotta fólks sem staðið hefur
vaktina í leikfélaginu svo árum skiptir.
Það er auðvitað þetta marg umtalaða fámenni sem veldur
því að ekki er alltaf fullt út úr dyrum í öllum klúbbum, félagasamtökum og á
hinum ýmsu viðburðum. Hvert og eitt okkar hefur bara visst margar klukkustundir
í hverjum sólarhring sem hægt er að verja í tómstundir og félagsstörf – og
samkvæmt síðustu talningum fer okkur víst ört fækkandi.
Bara ef þessi vinna væri ekki alltaf að trufla okkur –
þá gætum við nú aldeilis nýtt okkur öll þessi góðu tilboð af menningu,
afþreyingu og hreyfingu...
Góðar stundir – hvar sem þið verjið þeim.
Húsfrúin

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |