Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Lesendur Húnahornsins hafa valið feðgana Kára Kárason og Pétur Arnar Kárason sem menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2012. Tilkynnt var um útnefninguna á þorrablóti Vökukvenna sem haldið er í Félagsheimilinu á Blönduósi í kvöld og fengu feðgarnir sitthvorn viðurkenningarskjöldinn þessu til staðfestingar. Fjölmargar tilnefningar bárust en Kári og Pétur Arnar fengu langflestar.
Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason unnu björgunarafrek í mars í fyrra þegar þeir sýndu mikið snarræði og björguðu manni sem sat fastur í bíl sem oltið hafði ofan í Laxá á Ásum. Þeir feðgar komu akandi eftir þjóðveginum þegar þeir sáu bíl sem koma akandi á móti þeim taka snögga beygju með þeim afleiðingum að hann endastakkst á bakkanum og lenti síðan úti í ánni á hvolfi. Kári hringdi strax á Neyðarlínuna og gaf þeim upp staðsetningu. Síðan tók sonur hans Pétur Arnar við símanum og sá hann um samskipti við Neyðarlínuna á meðan Kári reyndi að opna dyrnar á bílnum í ánni. Ekki var hægt að opna bílstjóramegin og þurfti Kári að fara lengra út í ána og tókst honum að opna farþegadyrnar. Maðurinn í bílnum var fastur í belti og gat Kári ekki losað það.
Þegar þarna var komið sögu var bíllinn hálffullur af vatni, hann var á hvolfi og ökumaðurinn því með höfuðið ofan í vatninu og að auki fastur í beltinu. Kári greip því til þess bragðs að lyfta höfðinu upp úr vatninu og stóð í ískaldri ánni uns hjálp barst. Pétur Arnar stöðvaði fyrsta bílinn sem koma akandi eftir veginum en í honum voru sjúkraflutningamenn og kom þeir feðgunum til aðstoðar við björgunina.
Feðgarnir voru báðir mættir í Félagsheimilið á Blönduósi í kvöld til að taka móti viðurkenningum í tilefni af útnefningunni en hefð hefur skapast að tilkynna um mann ársins á hinu sívinsæla þorrablóti Vökukvenna sem ávallt er haldið fyrsta laugardag í þorra.
Menn ársins síðustu ár eru þessir:
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal.
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.
Húnahornið óskar feðgunum innilega til hamingju með útnefninguna.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |