Pistlar | 01. apríl 2015 - kl. 14:03
Heilsuvikan
Frá skipuleggjendum heilsuvikunnar

Við viljum þakka fyrir frábæra þátttöku í heilsuviku og heilsufarsmælingum dagana 16. - 20. mars. Nú er um að gera að halda áfram að hugsa vel um heilsuna og nýta sér öll þau tækifæri sem standa til boða hér á svæðinu. Við viljum nota tækifærið til að kynna nýlegt úrræði fyrir þá sem hafa ekki hreyft sig í langan tíma sem eru hreyfiseðlar.

Heilsufarskveðjur!
Ásdís, Erla, Gerður Beta, Matthildur og Viktoría.

Hreyfiseðill 

Ávísun á hreyfingu eftir forskrift

Hreyfiseðill er meðferðarúrræði þar sem læknir vísar skjólstæðing til hreyfistjóra eftir að hafa lagt mat á hvort einstaklingurinn geti nýtt sér hreyfingu sem hluta af meðferð sinni og kynnt þetta úrræði fyrir honum.

Síðan er honum vísað til hreyfistjóra (sjúkraþjálfara) á Heilsugæslustöð sem tekur ítarlegt viðtal. Gert er 6-mínutna göngupróf, mældur blóðþrystingur og súrefnismettun fyrir og eftir gönguprófi. Hreyfistjóri aflar nauðsynlegra upplýsinga frá skjólstæðingnum varðandi hreyfingu og velur þau úrræði sem henta í samráði við hann og útbýr hreyfiáætlun. Hann kennir þátttakanda að nota tölvuforrit til skráningar þegar hreyfing er stunduð sem auðveldar hreyfistjóra markvissa eftirfylgd með þátttakanda.

Skjólstæðingurinn framfylgir áætluninni upp á eigin spýtur en undir eftirliti hreyfistjóra sem fylgist með árangri og meðferðarheldni.

Sýnt hefur verið fram á að með markvissri hreyfingu megi draga úr lyfjanotkun,  læknaheimsóknum og innlögnum.

Sannað er að það er hagkvæm og skilvirk fyrirbygging og/eða meðferð við langvinnum sjúkdómum. Sem dæmi má nefna:

Langvarandi verkir, kvíða, depurð, sykursýki, offita, kransæðasjúkdómar, hjartabilunareinkenni, afleiðing lungnaþembu, hár blóðþrystingur, hækkuð blóðfita

Jafnframt er sett meiri ábyrgð á einstaklingana og gefið tækifæri til að takast á við sjúkdóma með eigin atorku.

Hreyfiseðill er ekki það sama og beiðni um sjúkraþjálfun.

Tillögur um þjálfun:

Helst daglega: Ganga, stígaganga, garðvinna, þrekhjól eða hjóla, stafaganga

Þolþjálfun: Rösk ganga, hjóla, synda, fjölþjálfi, hlaupa/skokka, skíði, vatnsleikfimi, leikfimi,   dans, boltaíþróttir, styrktarþjálfun

Hreyfing með aðstoð hreyfistjóra tryggir frekar langvarandi ástundun þar sem hægt er að grípa inn í og ráðleggja þegar upp koma vandamál.                                                                   

Þannig er unnið að varanlegri lífstílsbreytingu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga