Pistlar | 22. nóvember 2018 - kl. 11:34
Verum snjöll - verslum heima
Eftir Unni Valborgu Hilmarsdóttur

Það styttist til jóla. Áður en við vitum af verðum við farin að skrifa jólakortin og pakka inn jólagjöfum.

Það er afar misjafnt hvenær fólk hefst handa við jólagjafainnkaupin. Einhverjir byrja snemma árs en svo eru aðrir sem bíða þar til á Þorláksmessu með að kaupa gjafirnar og allt þar á milli.

Það er líka afar misjafnt hversu miklu við eyðum í jólagjafir.

Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur um nokkurra ára skeið áætlað hversu miklu einstaklingar eyða í gjafir. Undanfarin ár hafa þeir áætlað að meðaltalsfjárhæð sem fullorðnir einstaklingar eyða í jólagjafir sé rétt ofan við 40 þúsund krónur

Það er athyglisvert að leika sér með þessa upphæð í samhengi við átak SSNV sem miðar að því að hvetja íbúa á Norðurlandi vestra til að versla heima fyrir jólin. Skv. vef Hagstofunnar voru 1. janúar 2018 skráðir 7195 íbúar á Norðurlandi vestra. Ekki er hægt að ganga út frá því að þeir allir versli gjafir fyrir 40 þúsund fyrir jólin svo við drögum frá þá sem eru yngri en 25 ára. Eftir standa 4814 íbúar.

Gefum okkur það að af þeim 4814 íbúum svæðisins sem eru 25 ára og eldri séu 4500 sem kaupa jólagjafir. Ef við miðum við 40 þúsund kallinn, sem er tæplega sú upphæð sem Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur gengið út frá undanfarin ár, má gera ráð fyrir að samtals versli íbúar Norðurlands vestra jólagjafir fyrir 180.000.000 kr.

Það eru eitthundraðogáttatíumilljónir!

Þetta er ansi há upphæð og líklega nokkuð hærri en margir gera sér í hugarlund.

Verslun á Norðurlandi vestra myndi sannarlega muna um þessi viðskipti, ættu þau sér öll stað á svæðinu. Því miður er því ekki að heilsa. Fjölmargir bregða sér til útlanda og ljúka jólagjafainnkaupum þar. Enn aðrir panta á netinu. Einhverjir eru meðvitaðir um mikilvægi þess að versla heima og hafa þá stefnu að versla eingöngu í heimabyggð. Enn aðrir gera örlítið af þessu öllu.

Mögulega má spara einhverjar krónur með því að versla annars staðar en í heimabyggð. Sá sparnaður verður hins vegar þegar til langs tíma er litið mögulega dýru verði keyptur. Því það er jú þannig að til að njóta þjónustu, verðum við að nýta hana. Til að hafa aðgang að verslunum sem selja gjafavöru, verðum við að versla gjafavöru á svæðinu. Ef við verslum öll utan svæðis er hætt við að bæði verði augljós leki á miklu fjármagni út af svæðinu sem og  þegar við lítum til lengri tíma muni verslunum fækka verulega.

Til að njóta þjónustu verðum við að nýta hana.

Styðjum við vöxt og viðgang Norðurlands vestra, sérstaklega yfir hátíðarnar þegar óvenju mikið er verslað, og verslum í heimabyggð. Hér er allt til alls.

Verum snjöll.

Verslum heima!

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga