Pistlar | 05. janúar 2019 - kl. 07:11
Bæn við upphaf nýs árs
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Ekki er ég nú vanur að setja mér einhver ákveðin markmið við áramót eða að strengja formleg áramótaheit önnur en þau að reyna jafnvel að verða ögn skárri maður en í fyrra. Ég bið þess gjarnan einnig við áramót líkt og daglega að mér auðnist að fá að vera farvegur kærleika Guðs, náðar hans og miskunnar, fyrirgefningar, friðar, fagnaðarerindis og vonar.

En um þessi áramót er ein stutt útgáfa af bæn minni af gefnu tilefni eitthvað á þessa leið þar sem mér tekst oft eitthvað svo skelfing illa að lifa lífinu og fylgja hugsjónum mínum og köllun eftir. Því allt of oft geri ég ekki hið góða sem ég vildi hafa gert og framkvæmi frekar og segi eitthvað miður sem ég hefði alls ekki viljað gera eða segja.

Þeir taki undir bæn mína sem finna sig í því.

Bæn
Almáttugi eilífi Guð, höfundur lífsins, kærleikans, friðarins og vonarinnar. Þú sem sendir okkur son þinn Jesú Krist til að hughreysta okkur, minna okkur á, hvetja okkur til góðra verka og til að standa með okkur í tímans straumi, miskunna þú mér er ég hrópa á þig af öllum mætti en veikburða rómi, í hálfum hljóðum, vertu mér syndugum náðugur og líknsamur.

Hjálpaðu mér nú Guð minn til að líta aðeins inn á við og hugsa minn gang. Hjálpaðu mér að koma fram við samferðamenn mína af virðingu og tillitssemi. Baktala ekki og segja ekkert um einhvern sem ég get ekki sagt við viðkomandi.

Minntu mig á að hrokast ekki upp, vera ekki að töffarast eitthvað áfram og leika eitthvað annað en ég er. Veittu mér heldur náð þína til þess að lifa og umgangast fólk og verkefni af auðmýkt og í kærleika. Með því að sjá og hlusta með hjartanu. Sýna skilning á stöðu náungans og umhverfi og reyna að verða að liði eins og mér frekast er unnt hverju sinni.

Þú sem elskar mig og vilt mér allt hið besta, viltu gefa mér heilsu, styrk og þrek til að takast á við dagana og verkefni þeirra. Gef að ég geti orðið þér til dýrðar, fólki til blessunar og þannig sjálfum mér til heilla.

Blessaðu öll þau sem hallað er á með einum eða öðrum hætti. Vitjaðu þeirra með þinni líknandi, læknandi og lífgefandi umvefjandi kærleiksríku hendi og tak okkur öll þér í faðm og berðu okkur yfir erfiðu hjallana, skaflana og torfærurnar þegar við virðumst ekki geta meir sem er hreinlega svo oft og iðulega.

Blessaðu þau sem mér eru kærust, eiginkonu, börn, tengdabörn og barnabörn. Vilt þú vaka yfir lífi þeirra og velferð. Vilt þú umvefja þau hlýju þinni og nálægð og fylgja þeim eftir hvert fótmál. Gefðu að líf okkar allt mætti verða samfelld bæn til þín í lofgjörð og þakklæti. Hvert æðarslag, hver andardráttur, hugsun og skref.

Hjálpaðu okkur öllum að gangast við mistökum okkar. Vera fús til að biðjast fyrirgefningar á verkum okkar, orðum og athöfnum. Hjálpaðu okkur einnig að vera ekki langrækin. Heldur tilbúin til sátta og vera reiðubúin að leggja okkar af mörkum í þeim efnum. Fylltu okkur af fyrirgefandi hugarfari og því að vilja leitast við að vilja standa saman, leggja okkar af mörkum og eiga frumkvæði í því að leitast við að vilja lifa í kærleika, í friði og sátt við alla menn.

Já, takk Jesús fyrir lífið. Það ert þú sem gerir það þess virði að vilja halda í það. Þú sem ert fullkomnari lífsins. Þú sem tókst syndir okkar mannanna, brot heimsins og misgjörðir á þig og dóst í okkar stað. Reist síðan upp frá dauðum, lifir í dag og tileinkaðir okkur veikum og smáum sigurinn með þér svo við fengjum lifað um eilífð í himneskri dýrð kærleikans þegar líf okkar verður um síðir leyst undan veikindum, hrörnandi líkama og mengaðri og sýktri veröld.

Minntu okkur daglega á það, lifandi frelsari. Í Jesú nafni. Amen.

Já, dýrð sé Guði föður og syni og heilögum anda svo sem var, er og verður um aldir og að eilífu.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga