Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:39 0 0°C
Laxárdalsh. 11:39 0 0°C
Vatnsskarð 11:39 0 0°C
Þverárfjall 11:39 0 0°C
Kjalarnes 11:39 0 0°C
Hafnarfjall 11:39 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 08. apríl 2019 - kl. 15:24
Kærleikurinn sigrar allt
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Kærleikurinn er ekki einhver þreyttur lagabókstafur eða steinrunnir stafir. Heldur síungt og ferskt hjartalag. Hugarþel, athöfn og verk sem spyrja ekki um endurgjald eða hvernig standi á.

Kærleikurinn er ekki þrasgjarn. Hann gefur sig ekki út fyrir að vita alltaf allt best og hann veður ekki yfir. Hann hlustar og sýnir skilning. Hann virðir, umvefur, uppörvar og hvetur. Hann sér og hlustar með hjartanu.

Litríkur með notalega nærveru

Kærleikurinn er litríkur með sterka en notalega nærveru sem stafar mildum geislum sínum yfir þá sem þiggja vilja.

Kærleikurinn er ekki yfirþyrmandi og þrengir sér ekki inn. Hann er litskrúðugur, kristaltær svo geislar hans endurspeglast. Ljós í myrkri, farvegur Guðs. Í honum kunna að vera margar vistarverur en engin dökk skúmaskot. Látum því ágreining, misklíð og óvild aldrei ná tökum á okkur svo hatrið fái ekki að nærast og verði kærleikanum yfirsterkara.

Eins og lífið sigrar dauðann

Kærleikurinn sigrar allt. Hann færir allt til betri vegar og öllu breytir til góðs. Og er kærleikur Guðs þar sterkasta fyrirmyndin. Hans sem þyrmdi ekki sínum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur öll. Hví skyldi hann ekki líka gefa okkur allt með honum. Það á nefnilega enginn meiri kærleika en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. Hvað þá svo þeir fái lífi haldið og lifað um eilífð. Kærleikurinn sigrar allt eins og lífið sigrar dauðann.

Kærleikur Guðs leiðir okkur nefnilega inn í heim annars þyngdarafls utan tíma og rúms þar sem við höfum nýtt fyrir stafni. Þar sem Guð verður sýnilegur og kærleikurinn áþreifanlegur.

Færir frið og framtíð

Já, kærleikurinn sigrar allt og bænin bræðir hjörtun. Þau hugsvölun veita, færa frið í hjarta og framtíð bjarta.

Leyfðu kærleikanum að stilla sína viðkvæmu strengi í þínu dýrmæta hjarta. Svo hann fái notið sín, flögrað um og borið birtu og yl í umhverfinu með sínum fögru, umvefjandi og hlýju vængjum. Og þú þannig orðið farvegur friðar og farsældar á vegum þínum.

Kærleikans koss í hjartað streymir þegar við gerum það að vöggu frelsarans. Þá upplifum við himininn kyssa jörðina. Leyfum honum að setjast þar að. Og þroskast og dafna til eilífs lífs.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið