Október 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |


Holtavörðuh. | 01:40 | N 6 | 2°C |
Laxárdalsh. | 01:40 | N 10 | 5°C |
Vatnsskarð | 01:40 | NNA 9 | 4°C |
Þverárfjall | 01:40 | NA 9 | 4°C |
Kjalarnes | 01:40 | 191.0 3 | 8°C |
Hafnarfjall | 01:40 | ANA14 | 8°C |


18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Með misjafnri velþóknun tóku landsmenn á móti þjóðsögunum 1862, sem æ síðan hafa verið kenndar við safnara sinn, Jón Árnason, en málþing var í gær norður á Skagaströnd á afmælisdegi Jóns. Hann fæddist á prestsetrinu Hofi 17. ágúst 1819. Hátíðin hófst með messu í Hofskirkju klukkan 11, þar sungu kirkjugestir sálmana með organistanum, Hugrúnu Sif og sr. Bryndís Valbjarnardóttir lagði út af biblíutextanum og gildi þjóðsagnanna sem voru óneitanlega í sviðsljósinu á þessum merka afmælisdegi.
Eftir messu afhjúpaði oddvitinn í sveitinni, Dagný Rósa Úlfarsdóttir á Ytra-Hóli söguspjald um Jón Árnason við félagsheimilið Skagabúð. Þar voru svo gestum boðnar veitingar, dýrindis kjötsúpa og kaffi á eftir. Landsbókasafn - Háskólabókasafn stóð fyrir þessum veitingum og veglegri afmælisveislu um nónbil í Fellsborg, þá var hlé á málþinginu þar sem fluttir voru fyrirlestrar um þjóðsögur, söfnun þeirra og gildi.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson flutti fyrsta erindið á málþinginu í Fellsborg, Rósa Þorsteinsdóttir, Kristján Sveinsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir fluttu þá sína fyrirlestra, en Örn Hrafnkelsson sagnfræðingur á Landsbókasafninu stjórnaði þinginu. Þar voru tónlistaratriði undir stjórn Hugrúnar Sifjar, sem gestir þökkuðu vel og nutu eins og fyrirlestranna en kl. 16.30 var komið að afhjúpun minnisvarða undir Spákonufellshöfða. Guðni forseti afhjúpaði þar mynd listamannsins Helga Gíslasonar af Jóni og útskýrði verk sitt fyrir gestunum.
Klukkutíma síðar var opnuð í bókasafninu í Gamla kaupfélagshúsinu kynning á starfi og ævi Jóns, þar var Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður sem bauð síðan gestum léttar veitingar þar á staðnum.
Nefndarmönnum, tónlistarmönnum og fyrirlesurum bauð síðan Landsbókasafnið til kvöldverðar í Fellsborg þar sem góð gleði ríkti fram eftir kvöldi. Að sunnudagsmorgni var ganga um Spákonufellshöfða og fleiri sögustaði í þorpinu með leiðsögn Ólafs Bernódussonar.
Fleiri myndir af hátíðinni má sjá á ljósmyndavef Árna Geirs Ingvarssonar.
Ingi Heiðmar Jónsson

02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |

03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |