Pistlar | 22. september 2020 - kl. 07:47
Elskum, í öllum aðstæðum, alla ævi
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Jæja, þá er að mörgu leyti svolítið sérstakt sumar að baki sem var okkur reyndar mörgum bæði mjög ljúft og gott. Og nú er varla annað í stöðunni sama hvað dagarnir kunna að hafa upp á að bjóða að gíra sig með bjartsýni og jákvæðni inn í haustið.

Ég er þakklátur fyrir að fá að vera í liði lífsins og fá að vera ykkur samferða á ævigöngunni sem þó kann að reynast okkur mörgum skrykkjótt, strembin, flókin og full af óvæntum áskorunum. 

Það er svo gott og dýrmætt að finna hvernig fólk stendur saman þegar á reynir þar sem hver og einn leggur sitt af mörkum eftir sinni náðargáfu, hæfileikum og getu til þess að okkur líði sem best. Jafn sem einstaklingar og heild. Jafnvel þrátt fyrir ólíkar áherslur og leiðir, lífsafstöðu í stjórnmálum, trúmálum eða hverju öðru sem við lifum fyrir eða eftir eða tökum mark á og mið af.

Með þakklæti og virðingu fyrir okkar eldri borgurum

Að undanförnu hefur mér verið hugsað til okkar elstu samborgara sem sum hver kunna að hafa lifað við einveru og fundið til einmanaleika, kvíða eða óöryggis. Sérstaklega í þeim tilfellum þar sem tengsl hafa skerst og minnkað af óhjákvæmilegum orsökum. Hjá þeim mörgum er ekkert bara einhvern tíma seinna, þegar betur stendur á. Þau þurfa á utan um haldi og alúð að halda, núna.

Hugsum hlýlega til þeirra og biðjum fyrir þeim og þökkum fyrir þau. Þeim sem hafa upplifað tímana tvenna og jafnvel þrenna og búa því yfir ævinnar reynslu. Við erum að tala um fólkið sem ól okkur upp, kenndi okkur að lesa og skrifa, fæddi okkur og klæddi. Fólkið sem sagði okkur sögur úr sínu uppeldi sem hver og einn upplifði með sínum hætti. Sögur sem eru sérstakar hver og ein og ekki mega gleymast. Nauðsynlegt og gott er að taka mið af og nýta sem innlegg í samtímann. Reynslu sem við getum nýtt okkur. Við erum að tala um fólkið sem kenndi okkur bænir og bað fyrir okkur og með okkur við rúmstokkinn, morgunverðarborðið eða kvöldverðarborðið. Þegar við héldum út í daginn, fórum í skólann í fyrsta sinn og svo framvegis. Hvort sem bænirnar voru beðnar upphátt eða í hljóði eða með hvaða hætti sem þær fóru fram, leynt eða ljóst. Að okkur vitandi eða óafvitandi.

Biðjum jafnframt fyrir aðstandendum okkar eldri borgara og öllum þeim sem koma að umönnun þeirra.

Tökum einnig tillit til langveikra

Biðjum einnig fyrir þeim sem haldnir eru einhverskonar sjúkdómum sem draga úr færni og virkni viðkomandi og þurfa því að fara sérstaklega gætilega í því ástandi sem við höfum búið við það sem af er árs.

Biðjum einnig fyrir aðstandendum þeirra og eins öllum þeim sem eru áhyggjufullir og kvíðnir vegna eigin stöðu eða ástvina sinna eða fyrir því sem koma skal. huldri framtíð sem enginn veit hvað kann að bera í skauti sér.

Elskum á meðan við lifum. Elskum fólkið okkar á meðan það lifir. Því þegar fólkið okkar er farið er of seint að sýna því umhyggju, virðingu og ást svo það fái notið þess.

Kærleikans Guð, höfundur og fullkomnari lífsins blessi okkur öll öllum stundum, jafnt að degi sem nóttu, í gleði og raunum, ævina á enda og um eilífð í sínum miskunnsama, náðarríka, fyrirgefandi og friðgefandi faðmi.

Í frelsarans Jesú nafni.

Með samstöðu- kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga